Vextir Seðlabankans of lágir undanfarna áratugi

Pen­inga­stefna á Ís­landi vék með mark­tæk­um hætti frá hag­kvæm­ustu stefnu í að­drag­anda al­þjóð­legu fjár­málakrepp­unn­ar 2008 og í kjöl­far Covid-heims­far­ald­urs­ins, sam­kvæmt rann­sókn­ar­rit­gerð Seðla­bank­ans. Vext­ir hafa al­mennt ver­ið of lág­ir. Tíð áföll og óvissa tor­velda hag­stjórn á Ís­landi.

Vextir Seðlabankans of lágir undanfarna áratugi
Ársfundur Seðlabankans Ný rannsóknarritgerð fjallar um vaxtaákvarðanir bankans síðustu áratugi. Mynd: Golli

Peningastefna Seðlabanka Íslands hefur ekki verið nógu hagkvæm undanfarna áratugi. Vextir hafa almennt verið ákvarðaðir of lágir og stefnan oft stutt við hagsveifluna í stað þess að veita henni mótspyrnu.

Þetta kemur fram í rannsóknarritgerð sem Seðlabankinn hefur gefið út. Ritgerðin ber titilinn „Too Little, Too Late? Testing The Optimality of Monetary Policy in Iceland“ og er eftir Birtu B. Haraldsdóttur og Bjarna G. Einarsson, hagfræðinga á sviði hagfræði og peningastefnu.

Í ritgerðinni beita höfundar tölfræðilegum aðferðum til að meta hvort ákvarðanir í peningastefnu á Íslandi hafi verið þær hagkvæmustu. Reiknuð var út stærð, kölluð OPP, til að prófa hvort ákvarðanir um peningastefnu víki frá því sem er hagkvæmast hverju sinni.

„Niðurstöðurnar benda til þess að meginvextir Seðlabanka Íslands hafi að jafnaði verið ákveðnir of lágir á undanförnum tveimur áratugum,“ segir í útdrætti ritgerðarinnar. „Jafnframt finnast tvö tímabil þar sem peningastefnan vék með marktækum hætti frá hagkvæmustu stefnu: annars vegar …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Eigum við ekki bara að halda stýrivöxtunum í 7% um ókomna tíð? Hagfræðingar telja, margir hverjir, að það sé sanngjörn ávöxtunarkrafa á fjármagn.
    0
  • ADA
    Anna Dóra Antonsdóttir skrifaði
    Myndin er dæmigerð: 5 miðaldra karlar og ein kona.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár