Ingibjörg Davíðsdóttir, þingkona Miðflokksins, segir að hver sá sem láti sér annt um öryggi Íslands muni hafna aðild að Evrópusambandinu, enda sé óljóst hvernig Bandaríkin taki slíkri aðild. Það sé „mjög miður“ að ríkisstjórn Íslands hafi ekki átt fundi með Bandaríkjunum um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Í myndbandi sem Ingibjörg og Miðflokkurinn sendu frá sér á samfélagsmiðlum færir hún rök fyrir því að ríkisstjórnin ætti að funda með Bandaríkjunum um málið. Hún vísar til 25 ára reynslu sinnar í utanríkisþjónustunni.
„Því miður hafa íslensk stjórnvöld vanrækt samskipti sín við Bandaríkin. Og það er mjög miður að þau hafi ekki sest niður með Bandaríkjunum, meðal annars til þess að ræða til dæmis hvað gerist með varnarsamning Íslands ef Ísland ákveður að ganga í Evrópusambandið,“ segir hún.
Þannig segir hún að samráð við Bandaríkin um aðild Íslands að ESB sé „eitthvað sem er ekki hægt að skoða eftir á.“
Þá …

























































Athugasemdir (1)