Myrkur í ágúst 17 — Sólmyrkvi yfir námum Salómons konungs

Margir skáldsag­ana­höf­undar hafa nýtt sér myrkva á himni í sögum sínum

Myrkur í ágúst 17 — Sólmyrkvi yfir námum Salómons konungs
Alltaf mátti treysta því að breska heims­veldið stæði sig í stykk­inu!

Hér er hlekkur á síð­ustu grein; hún birt­ist í gær.

Sól­myrkvar og tungl­myrkvar koma víða fyrir í sögum.

Henry Rider Haggard var einn vin­sæl­asti ævin­týra­sagna­höf­undur heims á síð­ari hluta 19. aldar og upp­hafi þeirra 20. Hann fædd­ist í Norfolk á Englandi og fór ungur til starfa í Suður-Afríku. Bretar lögðu þá lagt undir sig gríð­ar­stór svæði um víða ver­öld og nýttu þau sem nýlendur sínar.

Afkvæmi breska heimsveldisins

Rider Haggard var skil­getið afkvæmi Breska heims­veld­is­ins, sem kallað var. Hann trúði því stað­fast­lega að Bretar (og Vest­ur­landa­búar yfir­leitt) hefðu yfir­burði yfir íbúa Asíu og Afríku snerti tækni, menn­ingu og sið­ferði. Það væri því bæði sjálf­sagt, eðli­legt og æski­legt að Bretar legðu undir sig hinar „frum­stæðu“ þjóðir og það væri þeim síð­ar­nefndu raunar fyrir bestu. Þannig kæmust þær í snert­ingu við raun­veru­lega sið­menn­ingu.

Barist við villimenn

Eftir að Rider Haggard sneri aftur heim til Bret­lands hóf hann glæstan rit­höf­unda­feril. Hann skrif­aði tugi ævin­týra­bóka og sögu­legra skáld­sagna. Allra vin­sæl­ustu bækur hans sner­ust flestar um hug­rakka Breta sem fóru inn á ókunnar slóðir þar þeir lentu í miklum raunum. Oftar en ekki þurftu þeir að berj­ast fyrir lífi sínu við „villi­menn“ af ýmsu tagi.

Sú bók sem gerði Rider Haggard frægan var Námur Salómons kon­ungs er kom út 1885. Þar segir frá leið­angri enskra ofur­huga sem Allan Quatermain stýrir. Lagt er upp frá Durban í Suður-Afríku og farið yfir eyði­merkur og frum­skóg­ar­dali í leit að dem­enta­námum Salómons kon­ungs sem Biblían segir frá. Þar kemur að hóp­ur­inn lendir í klóm ætt­bálks inn­fæddra sem hinn illi Twala kon­ungur stýrir.

Ungri stúlku skal fórnað

Helsti hjálp­ar­kokkur Twala er æva­gömul norn sem nefn­ist Gagool. Þegar vondi kóng­ur­inn ætlar að láta fórna ungri stúlku til dýrðar sínum grimmu guðum grípa hvítu menn­irnir til sinna ráða. Einn þeirra var fróður um gang him­in­tungla og vissi að sól­myrkvi var í þann veg­inn að skella á.

Hvítu mennirnir koma til bjargar!

Hvítu menn­irnir til­kynntu nú inn­fæddum að þeir hefðu vald til að slökkva á sól­inni og myndu gera það ef Twala kóngur og menn hans þyrmdu ekki lífi ungu stúlkunnar og hlýddu þeim að öðru leyti. Twala og menn hans tóku ekk­ert mark á þeim en þá skall sól­myrk­vinn á, jörðin myrkvað­ist og hinir inn­fæddu héldu að allur heim­ur­inn væri að far­ast.

Nornin hafði séð annað eins

Nornin Gagool reyndi að róa sitt fólk, hún var svo gömul að hún hafði séð sól­myrkva áður en eng­inn hlust­aði á hana og nú tóku hvítu menn­irnir og vinir þeirra völdin í ætt­bálk­inum um skeið.

Margt átti enn eftir að ger­ast og hóp­ur­inn finnur að lokum námurnar eft­ir­sóttu og þar hlýtur nornin mak­leg mála­gjöld.

Og menn­irnir verða for­ríkir en ögur­stund sög­unnar er þegar sól­myrk­vinn skellur á.

Þess skal getið að í upp­runa­legri sögu Rider Haggards er um að ræða tungl­myrkva en ekki sól­myrkva. Í þeim mörgu kvik­myndum og teikni­mynda­sögum sem gerðar hafa verið eftir bók­inni, sem og í sumum nýrri útgáfum sög­unnar, er tungl­myrk­v­anum hins vegar breytt í sól­myrkva enda er það miklu dramat­ísk­ari við­burður.

Sól­myrk­vinn skall á, jörðin myrkvað­ist og hinir inn­fæddu héldu að allur heim­ur­inn væri að far­ast
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár