Arðgreiðsla skilar félagi forseta 50 milljónum

Eign­ar­halds­fé­lag Höllu Tóm­as­dótt­ur for­seta og Jóns Björns­son­ar, for­stjóra Ver­itas, fær 50 millj­ón­ir í arð frá fjár­fest­inga­fé­lag­inu Var sem þau eiga fjórð­ungs­hlut í. Halla seg­ist ekki koma að rekstri fé­lags­ins.

Arðgreiðsla skilar félagi forseta 50 milljónum
Halla Tómasdóttir Forseti Íslands á hlut í félagi á móti forstjóra Veritas. Mynd: Golli

Fjárfestingafélagið Var ehf. hagnaðist um 134 milljónir króna í fyrra og mun greiða 200 milljónir í arð til eigenda sinna.

Þetta kemur fram í nýjum ársreikningi félagsins vegna ársins 2025. Félagið er í jafnri eigu fjögurra eignarhaldsfélaga, Dalsáróss, Granats, Vita og Sunnuness, en það síðastnefnda er í 50% eigu Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á móti Jóni Björnssyni, forstjóra Veritas.

Var hagnaðist um 1.560 milljónir árið 2024 eftir sölu á þremur auglýsingafyrirtækjum, BBI, Dengsa og Billboard. Greiddur var út 800 milljón króna arður fyrir það ár en þar af komu 200 milljónir í hlut félags Höllu og Jóns.

Árið 2025 koma hins vegar 50 milljónir króna af 200 milljóna arðgreiðslu í hlut Sunnuness. Eigendur hinna eignarhaldsfélaganna bak við Var eru Jón Felix Sigurðsson í gegnum Dalsárós, Guðmundur Auðunn Auðunsson og Guðríður María Jóhannesdóttir í gegnum Granat, og Bjarni Þórður Bjarnason og fleiri í gegnum Vita fjárfestingafélag, samkvæmt nýjustu upplýsingum.

Eigið …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Stóð í þeirri meiningu að æðstu ráðamenn og konur ættu að aftengja öll tengsl sín og sinna nánustu við fyrirtæki í rekstri til að fyrirbyggja mögulega hagsmunaárekatra. Fréttin kemur á óvart og byggir ekki undir traust til forsetans hjá mér.
    4
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þetta var nú það eina sem okkur vantaði í glansheiminn
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
1
GreiningHorft til Evrópu

„Já“ þarf mörg­um sinn­um en „nei“ bara einu sinni

Ef „nei“ verð­ur nið­ur­stað­an á morg­un leggst Evr­ópu­um­ræð­an í dvala en skýt­ur upp koll­in­um síð­ar að mati Ól­afs Þ. Harð­ar­son­ar, pró­fess­ors emer­it­us. Verði „já“ nið­ur­stað­an þyrfti að kom­ast yf­ir marga þrösk­ulda áð­ur en Ís­land gengi í ESB, hvað þá tæki upp evru. Mörg rök „nei“-hreyf­ing­ar­inn­ar séu einnig rök gegn áfram­hald­andi veru í EES.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
3
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár