Myrkur í ágúst 10 — Ósýnilegir sólmyrkvar

Eru tungl­myrkv­ar eitt­hvað allt ann­að en sól­myrkv­ar?

Myrkur í ágúst 10 — Ósýnilegir sólmyrkvar
Sólmyrkvi. Það er margt í mörgu eins og Stuðmenn sögðu.

Í greininni í gær (en hana er hérna að finna) sagði að sólmyrkvar séu svo miklu óútreiknanlegri en tunglmyrkvar og það sé ástæðan fyrir því að prestarnir góðu í Babýlon reyndust aldrei þess umkomnir að spá fyrir um sólmyrkva.

Þótt þeir hafi verið búnir að átta sig á að tunglmyrkvar færu eftir Saros-hringnum svokallaða og því hægt að spá nákvæmlega fyrir um þá.

Þetta er rétt, en samt ekki nema að hálfu.

Saros-hringurinn aftur!

Sannleikurinn er sá að sólmyrkvar fara líka eftir Saros-hringnum.

Það eru líka átján ár, ellefu dagar og átta klukkustundir milli þeirra.

Og þeir eru reyndar nákvæmlega jafn tíðir og tunglmyrkvar.

Munurinn er sá að þótt bæði sól- og tunglmyrkvar fylgi sama Saros-hringnum er útkoman gjörólík.

Tunglmyrkvi sést greinilega frá allri næturhlið jarðarinnar. Vissulega er hann misjafnlega stór en einhver hluti hans er ævinlega sjáanlegur frá næturhlið jarðar.

Og skuggi jarðar er stór, miklu stærri en tunglið sjálft.

Á réttum stað

Sólmyrkvi er hins vegar annars eðlis. Skuggi tunglsins er agnarlítill þar sem hann fikrar sig eftir yfirborði jarðarinnar. Oft nær hann aðeins yfir 100–200 kílómetra breitt svæði.

Svo ef þú stendur ekki á hárréttu svæði – eins og á Látrabjargi sumarið 2026! – þá sérðu engan sólmyrkva.

Þá má segja að jörðin hliðrist alltaf til um átta klukkustundir við hvern sólmyrkva. Það eru þær átta klukkustundir sem bætast við dagana 6.585 frá þeim síðasta sem var „eins“.

Það þýðir að þótt rúmir 6.585 dagar séu frá síðasta sólmyrkva og sá næsti ætti því að vera alveg eins, þá „stekkur“ hann í rauninni til á yfirborði jarðar og verður sjáanlegur allt annars staðar á jörðinni en sá síðasti í Saros-hringnum.

Enginn sér sólmyrkvann

Að lokum skiptir hárnákvæm staðsetning tunglsins gríðarlegu máli fyrir sólmyrkva. Einmitt af því skugginn er svo lítill. Ef tunglið er aðeins örlítið of norðarlega eða sunnarlega á braut sinni fer skugginn hreinlega fram hjá jörðinni.

Þá sér enginn sólmyrkvann.

Þannig eru ýmsar og flóknar ástæður fyrir því að prestarnir í Babýlon gátu aldrei spáð fyrir um sólmyrkva þó þeir hafi verið búnir að átta sig á Saros-hringnum í sambandi við tunglmyrkva.

Sólmyrkvar urðu og verða á „réttum“ tíma samkvæmt hringnum en bara einhvers staðar allt annars staðar á jörðinni en fyrir átján árum, ellefu dögum og átta klukkutímum.

Og sjást kannski bara alls ekki af því tunglskugginn hefur einfaldlega misst af jörðinni í þetta sinn.

Tunglskugginn hefur einfaldlega misst af jörðinni
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ísland undirlagt hræðsluáróðri
5
Viðtal

Ís­land und­ir­lagt hræðslu­áróðri

„Tján­ing­ar­frels­ið er svo mik­il­vægt fyr­ir lýð­ræð­is­legt sam­fé­lag,” seg­ir Þór­hild­ur Sunna Æv­ar­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri al­þjóð­legu mann­rétt­inda­sam­tak­anna Coura­ge In­ternati­onal. Sem fyrr­um þing­mað­ur og sér­hæfð í mann­rétt­ind­um hef­ur hún í ófá­um mál­um bar­ist gegn þögg­un­ar­til­burð­um valds­ins gagn­vart þeim sem fletta of­an af mis­notk­un þess.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Segir „falsfrétt“ og „óhróður“ að hún vilji bera ESB-aðild undir Bandaríkin
6
StjórnmálEvrópumál

Seg­ir „fals­frétt“ og „óhróð­ur“ að hún vilji bera ESB-að­ild und­ir Banda­rík­in

Ingi­björg Dav­íðs­dótt­ir, þing­kona Mið­flokks­ins, sagði„mjög mið­ur“ að ekki hafi ver­ið fund­að með Banda­ríkj­un­um um „ hvað ger­ist með varn­ar­samn­ing Ís­lands ef Ís­land ákveð­ur að ganga í Evr­ópu­sam­band­ið“, en seg­ir það jafn­gilda „fals­frétt­um“ að hún vilji bera að­ild und­ir Banda­rík­in.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
4
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
6
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár