Myrkur í ágúst 9 — Tilviljun eða ráðabrugg guðanna?

Myrkur í ágúst 9 — Tilviljun eða ráðabrugg guðanna?
Þegar stjörnu­fræð­ing­arnir fóru að skoða töfl­urnar sínar þá kom nokkuð merki­legt í ljós!

Í gær hóf ég máls um presta í Babýlon sem voru í raun­inni stjarneðl­is­fræð­ingar síns tíma.

Það má lesa hér.

Og nú vill svo til að Babýlon er á hag­stæðu svæði til að fylgj­ast með tungl­myrkvum. Tunglið rís hátt svo nærri mið­baug sem í Babýlon og er oft vel sjá­an­legt. Ætla má að prest­arnir í Mesópótamíu hafi getað fylgst með einum til tveimur tungl­myrkvum á hverju ári.

Samviskusamir prestar

Þeir voru auð­vitað mjög mis­mun­andi. Það fer eftir stöðu tungls, jarðar og sólar hve stór hluti tungls­ins hylst skugga í hvert sinn, hvaða hluti þess og hvaða lit­brigði og önnur teikn fylgja.

Það var merki um hve sam­visku­samir prest­arnir í Babýlon voru að þeir skráðu þetta allt hjá sér í miklum smá­at­riðum. Einhvern tíma fyrir tæpum 3.000 árum voru þeir að skoða tungl­myrkva sem þá gekk yfir og ein­hver þeirra fór lík­lega að klóra sér í hausnum.

Eitthvað kunnuglegt

Hvað hann hét? Það vitum við ekki. En honum fannst eitt­hvað kunn­ug­legt við það hvernig skuggi jarðar lagð­ist yfir tunglið.

Gat verið að hann hefði séð þetta áður, nákvæm­lega svona?

Ásamt félögum sínum fór hann að grufla í öllum gömlu skýrsl­unum sem geymdar voru á ótelj­andi leir­töflum með fleygletr­inu.

Skýrsl­urnar sem þeir og fyr­ir­renn­arar þeirra höfðu fyllt út um hund­ruð og kannski þús­undir tungl­myrkva öldum saman.

Og allt í einu blasti það við þeim!

Spenntir prestar

Fyrir 6.585 dögum hafði orðið nákvæm­lega sams konar tungl­myrkvi.

Nákvæm­lega eins upp á punkt og prik.

Það er að segja fyrir átján árum, ell­efu dögum og átta klukku­stundum.

Nú urðu prest­arnir spenntir. Var þetta til­viljun eða eitt­hvert ráða­brugg guð­anna?

Þeir gáðu í leir­töfl­urnar sínar.

Hvenær hafði næsti tungl­myrkvi orðið á eftir myrk­v­anum fyrir 6.585 dögum?

Segjum að hann hafi þá orðið 177 dögum seinna.

(Talan er ekki valin út í blá­inn en látum ástæð­una liggja milli hluta í þetta sinn.)

Þeir ákváðu þá að bíða í 177 daga. 

Kerfi á himnum

Þeir og stall­bræður þeirra voru búnir að vera að fylgj­ast með tungl­myrkvum í meira en þús­und ár, þeir gátu eins beðið í 177 daga.

En þegar 177. dag­ur­inn reis upp, þá biðu þeir spenntir.

Og viti menn – skuggi jarðar skreið yfir hluta tungls­ins og úr varð myrkvi nákvæm­lega eins og myrk­vinn sem þá varð fyrir rúmum átján árum.

Nákvæm­lega.

Þeir höfðu komið auga á kerfi á himnum.

Tungl­myrkvar end­ur­tóku sig með 6.585 daga milli­bili.

Saros-hringurinn

Það lá nú alveg ljóst fyrir þegar þeir skoð­uðu leir­töfl­urnar sínar.

Aftur og aftur og aftur end­ur­tók sig sama runan af sams konar tungl­myrkvum.

Og gerir raunar enn.

Þessi „hringur“ tungl­myrkva kall­ast nú Saros-hring­ur­inn. Babýlonsku prest­arnir not­uðu ekki það nafn, það kom til sögu í Evrópu á 18. öld eftir upp­haf tíma­tals okkar.

Auga komið á

Evr­ópskir stjörnu­fræð­ingar sáu orðið „saros“ í hinum babýlonsku heim­ildum og héldu að það væri heitið sem prest­arnir hefðu gefið hringnum sem þeir upp­götv­uðu.

Svo var ekki. „Saros“ var víst bara orð notað yfir til­tekna tölu. Babýlonsku prest­arnir not­uðu víst ekk­ert sér­stakt orð yfir hring­inn sem þeir höfðu upp­götvað.

En þeir höfðu sann­ar­lega komið auga á hann.

Gat verið að hann hefði séð þetta áður, nákvæm­lega svona?
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár