Myrkur í ágúst 8 — Babýloníumenn horfa til himins

Fyrir mörg þús­und árum reyndu prestar og stjörnu­vís­inda­menn í Babýlon af öllum mætti að spá fyrir um tungl- og sól­myrkva.

Myrkur í ágúst 8 — Babýloníumenn horfa til himins
Stjörnu­fræð­ingar og prestar í Babýlon rann­saka sól­myrkva.

Enn fær­ist sól­myrk­vinn nær.

Hér er greinin frá í gær þar að lút­andi.

Við vitum upp á hár hvenær hann hefst og hvenær honum lýkur af því við höfum lært að reikna það allt saman út. En í þess­ari grein segir af fyrstu til­raunum manna til slíkra útreikn­inga.

Í Mesópótamíu

Ein elsta sið­menn­ing heims­ins reis þar sem þá hét Mesópótamía fyrir rúm­lega 5.000 árum eða 3.000 fyrir upp­haf tíma­tals okkar, eða „fyrir Krist“. Mesópótamía kall­ast nú Írak. Tvö stór fljót falla um svæðið, Tígris og Efrat, og þar var í fynd­inni afar frjósamt og blóm­legt til búsetu.

Nokkur ríki komu og fóru í Mesópótamíu en einna lang­lífast var ríkið Babýlon sem kennt var við sam­nefnda borg. Borgin reis fyrir rúmum 4.000 árum. Hún stendur við fljótið Efrat og er tæpa 100 kíló­metra frá þar sem Bagdad stendur nú.

Hammúrabí og lögbókin hans

Þar og ann­ars staðar í Mesópótamíu þró­uðu menn skrift á undan öllum öðrum í heim­inum (hið svo­nefnda fleyg­letur), komu upp áveitum, reistu flókið og lag­skipt sam­fé­lag og stund­uðu bæði vís­indi og bók­menntir. Hammúrabí kon­ungur í Babýlon fyrir 3.700 árum var frægur fyrir lög­bók sína sem hafði mikil áhrif, til dæmis á þá laga­setn­ingu Ísra­els­manna sem greint er frá í Gamla testa­ment­inu.

Prestar eða vísindamenn?

Í Babýlon var jafnan áhrifa­mikil presta­stétt en hlut­verk prest­anna var ekki aðeins trú­ar­legs eðlis. Þeir höfðu líka það hlut­verk að ráða í atburði nátt­úr­unnar til þess að spá fyrir um hvernig hún myndi haga sér í fram­tíð­inni.

Til­gang­ur­inn var að sjálf­sögðu að vera við­búin nátt­úru­legum áföllum en einnig að vera til­búin að grípa gæs­ina þegar nátt­úran var mönn­unum hag­stæð og gjöful.

Í þá daga trúðu flestir því að nátt­úru­fyr­ir­brigði væru undir beinni stjórn duttl­unga­fullra guða.

Duttlungafullir guðir

Guðirnir gátu tekið upp á hverju sem var – fram­kallað eld­gos og jarð­skjálfta, flóð eða þurrka, pestir eða góð­æri. Menn­irnir réðu engu og von­uðu bara að fórnir þeirra og und­ir­lægju­háttur gagn­vart guð­unum hugn­uð­ust vel hinum skömm­óttu guðum.

En um leið fóru menn­irnir sem sagt líka að fylgj­ast með nátt­úru­fyr­ir­bær­unum í von um að læra á nátt­úr­una og/eða guð­ina. Geta, ef best lét, lesið vilja guð­anna út úr hegðun nátt­úru­afl­anna.

Tákn á himnum

Prest­arnir í Babýlon beindu mjög sjónum sínum til him­ins. Þeir rýndu í og skráðu niður hjá sér upp­lýs­ingar um gang him­in­tungla og stjarna. Þá varð stjörnu­fræði til en fyrstu árþús­undin var hún óað­skilj­an­leg frá því sem við köllum nú stjörnu­speki.

Menn voru sann­færðir um að stjörn­u­rnar væru raun­veru­leg tákn hinna ýmsu guða. Þeir töldu sig sjá myndir guða og goð­magna út úr því hvernig stjörn­u­rnar röð­uðu sér upp á næt­ur­himn­inum og hvernig sól og tungl ferð­uð­ust um him­in­inn.

Og þessi „stjörnu­merki“ hefðu bein áhrif á líf mann­anna.

Hm, hvað er að sjá?

Meðal þess sem prest­arnir – í þessu til­felli stjörnu­fræð­ing­arnir – í Babýlon punkt­uðu hjá sér á leir­töfl­urnar sínar voru upp­lýs­ingar um sól­myrkva og tungl­myrkva.

Sól­myrkvar eru svo illút­reikn­an­legir að þótt babýlonsku prest­arnir væru snjallir komu þeir ekki auga á neitt kerfi hvað þá snerti. En eftir að hafa fylgst vand­lega með tungl­myrkvum sem gengu yfir Babýlon öldum saman, þá tóku prest­arnir hins vegar eftir svolitlu merki­legu.

Frá því segir á morgun.

Menn voru sann­færðir um að stjörn­u­rnar væru tákn hinna ýmsu guða
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magni Hjálmarsson skrifaði
    "Guðirnir gátu tekið upp á hverju sem var – framkallað eldgos og jarðskjálfta, flóð eða þurrka, pestir eða góðæri. Mennirnir réðu engu og vonuðu bara að fórnir þeirra og undirlægjuháttur gagnvart guðunum hugnuðust vel hinum skömmóttu guðum."
    Er þessi tími runninn upp aftur í hugumsmáum Íslendingum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár