Skjóta flugskeytum beint í hjarta Kyrrahafsins

„Höfin okkar eru ekki tómt svæði eða varn­ar­svæði milli stór­velda heims­ins – þau eru eign okkar, lífs­við­ur­væri okkar og hluti af sjálfs­mynd okkar sem vernd­ara hafs­ins,“ sagði ráð­herra í rík­is­stjórn Kíribatí. Tólf ríki hafa for­dæmt til­raunir Kínverja með lang­dræg flug­skeyti.

Skjóta flugskeytum beint í hjarta Kyrrahafsins

Eyríki í Kyrra­hafi hafa for­dæmt til­raun Kínverja með lang­drægt flug­skeyti sem lenti í hjarta hinnar sam­eig­in­legu „bláu heims­álfu“ þeirra, að sögn stjórn­mála­manna og sér­fræð­inga sem AFP ræddi við.

Jafnvel Kyrra­hafs­þjóðir sem standa í þakk­ar­skuld við Kína tóku þátt í gagn­rýn­inni á til­raun­ina með lang­dræga flug­skeytið sem skotið var úr kaf­báti og náði langt út á Kyrrahaf.

Hugtakið „Blá heims­álfa“ er notað af eyþjóðum Kyrra­hafs­ins til að lýsa sam­eig­in­legu heim­ili sínu og sam­eig­in­legri ábyrgð á haf­inu.

Lenti utan lögsögu ríkjanna

Kjarn­orku­vopna­hæft flug­skeytið, búið sýnd­ar­oddi, lenti ein­hvers staðar milli Nárú, Túvalú og Salómons­eyja, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá eft­ir­lits­að­ilum og emb­ætt­is­mönnum á Kyrra­hafs­eyjum.

Sá staður sem talið er að flug­skeytið hafi lent á er meðal eyj­anna í Kyrra­haf­inu, en á einu af fáum haf­svæðum þar á milli sem til­heyrir ekki efna­hags­lög­sögu (EEZ) neins ríkis.

Kín­verjar sögðu að flug­skeyta­til­raun­inni „hefði ekki beinst gegn neinu landi“ …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár