Eyríki í Kyrrahafi hafa fordæmt tilraun Kínverja með langdrægt flugskeyti sem lenti í hjarta hinnar sameiginlegu „bláu heimsálfu“ þeirra, að sögn stjórnmálamanna og sérfræðinga sem AFP ræddi við.
Jafnvel Kyrrahafsþjóðir sem standa í þakkarskuld við Kína tóku þátt í gagnrýninni á tilraunina með langdræga flugskeytið sem skotið var úr kafbáti og náði langt út á Kyrrahaf.
Hugtakið „Blá heimsálfa“ er notað af eyþjóðum Kyrrahafsins til að lýsa sameiginlegu heimili sínu og sameiginlegri ábyrgð á hafinu.
Lenti utan lögsögu ríkjanna
Kjarnorkuvopnahæft flugskeytið, búið sýndaroddi, lenti einhvers staðar milli Nárú, Túvalú og Salómonseyja, samkvæmt upplýsingum frá eftirlitsaðilum og embættismönnum á Kyrrahafseyjum.
Sá staður sem talið er að flugskeytið hafi lent á er meðal eyjanna í Kyrrahafinu, en á einu af fáum hafsvæðum þar á milli sem tilheyrir ekki efnahagslögsögu (EEZ) neins ríkis.
Kínverjar sögðu að flugskeytatilrauninni „hefði ekki beinst gegn neinu landi“ og bryti ekki í bága við nein alþjóðalög.
En …

















































Athugasemdir