Dauðastríð, fíflaskapur og eftirför: Allt það helsta um hvalveiðitímabilið

Hval­ur hf. hef­ur veitt tíu lang­reyð­ar það sem af er hval­veiði­tíma­bil­inu sem nú stend­ur yf­ir. Skip á veg­um Paul Wat­son veit­ir Hvali 8 og Hvali 9 eft­ir­för, Mat­væla­stofn­un hef­ur frá­vik til skoð­un­ar og Heil­brigðis­eft­ir­lit Vest­ur­lands fylg­ist með meng­un. Heim­ild­in tók sam­an um­deilda ver­tíð.

Dauðastríð, fíflaskapur og eftirför: Allt það helsta um hvalveiðitímabilið
Umdeilt hvalveiðitímabil Ýmislegt hefur gerst á yfirstandandi tímabili. Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

Yfirstandandi hvalveiðivertíð hefur verið mikið í deiglunni. Fyrsta langreyðurin í tvö ár var veidd 23. júní en síðan þá hafa Hvalur 8 og Hvalur 9 veitt tíu langreyðar. Heimildin fer hér yfir viðburðaríka og afar umdeilda vertíð.

Watson vill stoppa Kristján á ný

Aðgerðarsinninn Paul Watson hefur dregið mikla athygli að hvalveiðunum í ár en hann hefur í áratugi barist gegn atvinnustarfseminni. Watson skrifaði á samfélagsmiðla þann 26. júní að skipið Bandero, sem tilheyrir samtökum hans, væri á leið til Íslands til að stöðva Kristján Loftsson sem hann kallaði „morðóðan raðmorðingja“. Síðan Bandero kom inn í íslenska lögsögu degi síðar hefur varðskipið Þór á vegum Landhelgisgæslunnar fylgt skipinu eftir.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sagt að gripið verði til aðgerða ef þarf og að málið snúist um öryggi áhafnarmeðlima, bæði sjómanna Hvals og erlendu áhafnarinnar. „Það er alveg skýrt að hvalveiðar eru löglegar samkvæmt íslenskum lögum, hvað sem mönnum kann …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
2
ViðtalLífið á Grensás

„Þeg­ar þú ert með flók­in dæmi vilja kerf­in illa tala sam­an“

Yf­ir­lækn­ir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eft­ir út­skrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eft­ir þjón­ustu. Heilask­að­ar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyld­ur og nærsam­fé­lag­ið en gef­andi sé að sjá fólk halda aft­ur út í líf­ið eft­ir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
3
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár