Kirkjan mótmælir stofnun lands undir baðlón á Vestfjörðum

Þjóð­kirkjan fer fram á að bæj­ar­yf­ir­völd á Ísafirði end­ur­kalli ákvörðun um stofnun lóðar sem kirkjan telur sig eiga til­kall til. Til stendur að reisa bað­lón á svæð­inu.

Kirkjan mótmælir stofnun lands undir baðlón á Vestfjörðum
Sólsetur við Önund­ar­fjörð Vest­firðir reyna að treysta heils­árs­ferða­mennsku, meðal ann­ars með nýju bað­lóni. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Þjóð­kirkjan gerir alvar­legar athuga­semdir við stofnun lóð­ar­innar Hvíta­sands innan jarð­ar­innar Þóru­staða í Önund­ar­firði, þar sem félag á vegum athafna­fólks­ins Runólfs Ágústs­sonar og Áslaugar Guð­rún­ar­dóttur hyggst reisa glæsi­leg bað­lón. Lóðin er í Önund­ar­firði og er deilan um landa­merki á svæð­inu ríf­lega ald­ar­gömul. Dóm­kvaddur mats­maður hefur verið feng­inn til þess að úrskurða um þessa deilu sem má rekja til árs­ins 1909.

„Vonandi verður nú hægt að leysa þetta á næst­unni,“ segir Eiríkur Guð­laugs­son, lög­maður kirkj­unnar, sem und­ir­ritar mót­mæli kirkj­unnar sem voru lögð fyrir skipu­lags- og mann­virkja­nefnd Ísa­fjarð­ar­bæjar þann 30. júní síð­ast­lið­inn.

Langvarandi ágreiningur

Í grein­ar­gerð lög­manns­ins segir að bænum sé vel kunn­ugt um langvar­andi ágrein­ing sem hafi staðið á milli Holts, sem er kirkju­jörðin, og Þóru­staða um mörk jarð­anna. Úr þeim ágrein­ingi hafi ekki enn verið skorið úr.

Teikn­ingar af bað­lóniHér má sjá teikn­ingar sem finna má í gögnum bæj­ar­ins um bað­lónið.
…
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár