Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku

Þegar Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vændum. Hún varð fyrir bíl og þar sem hún lá slösuð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störfum sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún segir frá því þegar hún fékk „ tvö rot­högg á einum örlaga­ríkum degi“.

Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, sem hefur und­an­farin ár starfað sem upp­lýs­inga­full­trúi vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, deildi með vinum sínum á Facebook sög­unni af því þegar hún fékk „tvö rot­högg á einum örlaga­ríkum degi“. 

„Hér er lítil saga af því. Á fimmtu­dags­morg­un­inn, fyrir viku síðan í dag, lagði ég af stað hjólandi út í dag­inn. Ég var að rúlla yfir Kringlu­mýr­ar­braut­ina á grænum göngu­ljósum þegar ég var keyrð niður. 

Ég sá bíl­inn koma á fullri ferð og tím­inn hægði á sér. Þegar höggið kom og meðan flug­inu stóð hugs­aði ég: „Ég er að lenda í slysi núna. Verð að vanda mig og lenda vel.“ Stór­und­ar­leg lífs­reynsla. 

Nokkrum klukku­stundum síðar, þar sem ég lá á bráða­mót­tök­unni, komst ég að því að mér og nær öllu mínu frá­bæra og hæfi­leik­a­ríka sam­starfs­fólki úr Ráð­hús­inu hafði verið sagt upp störfum,“ skrifar hún. 

Nú kallar hún eftir gleði­vekj­andi efni á meðan hún reynir að jafna sig. „Ég er öll marin og blá frá toppi til táar, illa við­beins­brotin, mjög fjögur brotin rif­bein og hluti tveggja hryggjar­liða, þvertind­arnir, eru brotnir. Svo fékk ég svo­kallað loft­brjóst og virki­lega hressi­legan heila­hrist­ing. Ég er ansi aum og löskuð en vá, hvað ég er þakk­lát fyrir að vera á lífi.“

Hún sé heppin að eiga góða bata­von. Sem betur fer er hún umkringd góðu fólki sem hjálpar til og léttir lund. „Í þeim vina­hópi er líka fólkið mitt hjá borg­inni, bæði í Borg­ar­tún­inu og Ráð­hús­inu. Ég vann á báðum stöðum og átti því óvenju­stóran hóp vinnu­fé­laga. Ef þið bara vissuð hvað það er margt frá­bært fólk að störfum þarna, fólk sem vinnur verk sín vel og af metn­aði, notar bæði heila og hjarta til þess. Það er ekki öllum gefið. Mun sakna þess að vinna með þeim en á þau sem vini áfram.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    engum skal hlíft nema hann sé þóknanlegur íhaldinu þetta er hið skítlega eðli
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu