Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni

Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­lega áreitni og staf­ræn kyn­ferð­is­brot fjölg­aði um 64 pró­sent milli ára fyrstu þrjá mán­uði árs­ins. Almennt fjölg­aði kyn­ferð­is­brotum milli ára. 83 pró­sent brota­þola eru konur og grun­aðir eru í 90 pró­sent til­fella karlar. 48 pró­sent brota­þola eru undir 18 ára.

Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
Kyn­ferð­is­brotum fjölgar milli ára Til­kynn­ingum fjölgar um níu pró­sent milli ára þegar fyrstu þrír mán­uðir árs­ins eru skoð­aðir. Mynd: Golli

Fjölgun til­kynn­inga um kyn­ferð­is­lega áreitni og staf­ræn kyn­ferð­is­brot jókst um 64 pró­sent milli ára, ef miðað er við fyrstu þrjá mán­uði árs­ins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem rík­is­lög­reglu­stjóri birti í dag. Í fyrra voru 28 brot til­kynnt en í jan­úar til mars í ár voru þau 46. Borið saman við sama tíma­bil síð­ustu þriggja ára er aukn­ingin um 45 pró­sent.

Áherslur lögreglu gætu skýrt fjölgun

Til­kynn­ingar um vændi nær þre­föld­uð­ust og voru 19 mál tekin fyrir hjá lög­reglu en 11 í fyrra. „Sveiflur í þessum flokki geta tengst frum­kvæð­is­vinnu lög­reglu og auk­inni áherslu stjórn­valda á skipu­lagða brota­starf­semi fremur en raun­breyt­ingu á tíðni brota,“ segir í frétt rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þá fjölg­aði til­kynntum kyn­ferð­is­brotum um níu pró­sent milli ára fyrstu mán­uði árs­ins, jan­úar til mars, miðað við sama tíma­bil í fyrra og fóru úr 140 til­kynntum brotum í 153 til­kynnt brot. Til­kynntum nauðg­unum fækk­aði lít­il­lega milli ára fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár