Þessir þingmenn töluðu minnst á nýliðnu þingi: Stysta ræðan 38 sekúndur

Áslaug Arna tal­aði styst á nýliðnu þingi, eða í þrjár mín­útur. Lengst tal­aði Jón Pétur Ziemsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þessir þingmenn töluðu minnst á nýliðnu þingi: Stysta ræðan 38 sekúndur
Alþingi Mynd: Davíð Þór

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir tal­aði styst allra þing­manna á nýliðnum þing­vetri eða í heilar þrjár mín­útur sam­kvæmt svörum Alþingis um ræðu­tíma þing­manna. Þann stutta tíma nýtti hún til þess að til­kynna þing­heimi, og þjóð­inni allri, að hún segði af sér þing­mennsku eftir ára­tuga­starf á því sviði. Áslaug Arna var í leyfi frá þingi yfir vet­ur­inn og lagði stund á nám í Banda­ríkj­unum sem skýrir fjar­veru hennar frá ræðu­stólnum.

Af þeim þremur þing­mönnum sem töl­uðu styst á þingi eru tveir þeirra þing­menn Flokks fólks­ins eða hafa verið í honum. Þannig er Guð­mundur Ingi Krist­ins­son í öðru sæti yfir þá þing­menn sem töl­uðu styst á liðnum vetri, eða 23 mín­útur. Athugið að ræður hans sem mennta- og barna­mála­ráð­herra eru ekki taldar hér með til þess að gæta jafn­ræðis í sam­an­burði á þing­tíma. Séu ráð­herra­ræður teknar með í reikn­ing­inn tal­aði hann 2 klukku­stundir og eina mín­útu. Það setur hann nokkuð ofar af þing­mönnum sem töl­uðu styst.

Guð­mundur Ingi fór í veik­inda­leyfi í des­em­ber síð­ast­liðnum vegna hjart­veiki. Hann tók sæti á ný á þingi í mars og til­kynnti í kjöl­farið að hann hygð­ist segja sig úr Flokki fólks­ins og sitja utan þing­flokka.

Í þriðja sæt­inu er þing­maður Flokks fólks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Jónína Björk Ósk­ars­dóttir. Hún tal­aði í 47 mín­útur sam­an­lagt í 24 ræðum. Athugið að hér er aðeins litið til þing­manna en fjöl­margir vara­þing­menn töl­uðu mun skemur. Þannig var stysta ræðan á þing­vetr­inum 38 sek­úndur, en hana flutti Gabríel Ingi­mars­son, vara­þing­maður Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Sá sem tal­aði lengst á þingi var Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem tal­aði í 29 klukku­stundir og 55 mín­útur. Næst á eftir komu Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, sem tal­aði í 27 klukku­stundir og 35 mín­útur og að lokum sam­flokks­maður hennar, Þor­grímur Sig­munds­son, sem tal­aði í 25 klukku­stundir og 33 mín­útur.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár