Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent

Verð­bólga hef­ur mælst í kring­um 5,2 pró­sent allt þetta ár. Hún hækk­ar lít­il­lega á milli mán­aða. Sam­an­lagt skýra flug­far­gjöld, gist­ing og reikn­uð húsa­leiga stór­an hluta hækk­un­ar­inn­ar milli mán­aða.

Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent
Á flug Verðbólgan hefur haldið flugi sínu í rúmum fimm prósentum og nú er það ekki síst flugverð sem heldur henni á lofti. Mynd: Golli

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94 prósent milli mánaða í júní og mælist tólf mánaða verðbólga nú 5,2 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Verðbólgan hefur þar með marað í kringum 5,2 prósent það sem af er ári og lætur lítið undan síga.

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júní 2026, er nú 690,7 stig og hækkar úr 684,3 stigum í maí. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði enn meira milli mánaða, eða um 1,08 prósent, og mælist tólf mánaða hækkun hennar 4,8 prósent.

Mest áhrif til hækkunar í júní höfðu flugfargjöld til útlanda, sem hækkuðu um 20,1 prósent milli mánaða og höfðu 0,52 prósentustiga áhrif á vísitöluna. Gistiþjónusta hækkaði einnig verulega, eða um 17,5 prósent, sem hafði 0,11 prósentustiga áhrif. Þá hækkaði kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, um 0,6 prósent og hafði 0,13 prósentustiga áhrif til hækkunar.

Samanlagt skýra flugfargjöld, gisting og reiknuð húsaleiga stóran hluta hækkunarinnar milli mánaða. Hækkunin í júní kemur í kjölfar þess að vísitalan stóð nærri í stað í maí, þegar hún hækkaði aðeins um 0,07 prósent milli mánaða.

Síðustu tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2 prósent. Verðbólga án húsnæðis mælist 4,8 prósent.

Vísitala neysluverðs í júní, 690,7 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
5
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár