Kjúklingar köfnuðu í hitanum

„Á 42 ár­um hef ég aldrei séð ann­að eins,“ seg­ir Stép­hane Dela­pre, bóndi í Beau­vo­ir-sur-Mer við vest­ur­strönd Frakk­lands. Um helm­ing­ur hænsna hans kafn­aði í hita­bylgj­unni.

Kjúklingar köfnuðu í hitanum
Kjúklingabóndi í Frakklandi. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Mynd: AFP

Hitabylgjan í Frakklandi er farin að hafa alvarleg áhrif á bændur. Búfé fellur frá vegna hitans og bændur eru í kapphlaupi við tímann við að ná uppskerunni án þess að valda eldum í þurrum kornökrunum.

Stéphane Delapre, bóndi í Beauvoir-sur-Mer við vesturströnd Frakklands, sagði að helmingur hænanna hans hefði kafnað í gær. „Á 42 árum hef ég aldrei séð annað eins,“ sagði hann við AFP-fréttastofuna á meðan hann beið eftir embættismanni sem átti að sækja hræin.

Delapre heldur um 17.500 lausagönguhænur og 70.000 kornhænur í skýlum með útigerðum. „Við settum upp nokkrar viftur en þegar hitinn fór upp í 40–41 gráðu var ekkert sem við gátum gert,“ sagði hann.

Reynir að kæla kýrnar 

Sextíu kílómetrum þaðan sagði Régis Bonnin, 57 ára bóndi, að hann hefði komið fyrir úðakerfum til að kæla 120 mjólkurkýr sínar. Þrátt fyrir það framleiddu þær fjórum til fimm lítrum minni mjólk á dag en venjulega.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
1
ViðtalHorft til Evrópu

Líf­ið á Spáni fyr­ir og eft­ir Evr­ópu­sam­band­ið

Fjór­um ár­um áð­ur en Spánn gekk í Evr­ópu­sam­band­ið flutti Hólm­fríð­ur Matth­ías­dótt­ir, út­gáfu­stjóri For­lags­ins, til Barcelona. Hún hef­ur upp­lif­að mikl­ar breyt­ing­ar þar og seg­ir Evr­ópu­sam­band­ið hafa dælt styrkj­um til Spán­ar og það til ým­issa mála, eins og til end­ur­bóta á sam­göng­um og land­bún­aði jafnt sem styrkj­um til menn­ing­ar­mála. Þá hafi katalónsk­an hlot­ið með­byr.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ísland undirlagt hræðsluáróðri
3
Viðtal

Ís­land und­ir­lagt hræðslu­áróðri

„Tján­ing­ar­frels­ið er svo mik­il­vægt fyr­ir lýð­ræð­is­legt sam­fé­lag,” seg­ir Þór­hild­ur Sunna Æv­ar­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri al­þjóð­legu mann­rétt­inda­sam­tak­anna Coura­ge In­ternati­onal. Sem fyrr­um þing­mað­ur og sér­hæfð í mann­rétt­ind­um hef­ur hún í ófá­um mál­um bar­ist gegn þögg­un­ar­til­burð­um valds­ins gagn­vart þeim sem fletta of­an af mis­notk­un þess.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár