Frakkar lýsa helvíti á jörðu: „Sólin sýnir enga miskunn“

Í sting­andi hit­an­um halda íbú­ar í Renn­es sig helst heima fyr­ir, með glugg­ana lok­aða og leyfa sér ein­staka sinn­um að kveikja á vift­unni - því raf­magn­ið kost­ar sitt. Til að tak­marka hit­ann í íbúð­um sín­um borða þeir kald­an mat og drekka svalandi drykki. Þeg­ar þeir fara út leita þeir skjóls í skugga blokk­anna eða nið­ur við á.

Frakkar lýsa helvíti á jörðu: „Sólin sýnir enga miskunn“

Gluggahlerarnir eru lokaðir á jarðhæðinni þar sem 49 ára gömul ræstingarkona býr í frönsku borginni Rennes. Þegar hitinn náði 40°C sagðist hún ekki ætla út fyrir hússins dyr. „Þetta er erfitt en ég held mig heima,“ sagði Ancuta Lacatus við AFP. „Læknirinn minn ráðlagði mér að fara ekki út. Það er hættulegt fyrir mig,“ sagði hún, sem glímir við veikt hjarta.

En í hitabylgjunni sem herjar á Evrópu er ekki nóg að halda sig heima yfir daginn. „Jafnvel á nóttunni er mjög heitt,“ hélt hún áfram.

Í vikunni hefur hvert hitametið á fætur öðru fallið í Frakklandi. Hitabylgjan hefur ekki aðeins reynst banvæn heldur hefur hún einnig valdið truflunum á daglegu lífi íbúa. Skólum hefur verið lokað, samgöngutruflanir hafa verið miklar og ríkisstjórnin telur að eitt af hverjum þremur heimilum þar í landi sé ekki í stakk búið til þess að þola mikinn hita.

Endurbætur til að bæta einangrun á …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    And instead of fighting CO2 emissions politics seeks to adapt to heat! It wont work but humanity will find out by learning it the hard way!
    3
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Minnti mig á dystópíska skáldsögu Blá eftir Maja Lunde
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
4
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár