Hvalveiðar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar“

„Stóra spurn­ing­in er sú hvað raun­veru­lega vak­ir fyr­ir Kristjáni Lofts­syni úr því að hann tap­ar að­eins fjár­hags­lega á veið­un­um?“ spyr Dýra­vernd­ar­sam­band Ís­lands. Sam­tök­in gagn­rýna harð­lega veið­ar á lang­reyð­um í nótt.

Hvalveiðar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar“
Hvalveiðar „villimannslegar“ Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

„Þessu verður ekki lýst öðruvísi en sem villimannslegum veiðum sem eiga sér enga stoð í nútímanum,“ segir í yfirlýsingu sem Dýraverndarsamband Íslands sendi frá sér vegna hvalveiða. En í nótt var fyrsta langreyðurin í tvö ár veidd við Ísland. Tvær langreyðar voru veiddar af hvalveiðiskipinu Hvali 9.  

Sambandið segist harðlega mótmæla veiðunum sem það kallar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar út frá viðskiptahagsmunum Hvals hf. og aðaleiganda þess Kristjáns Loftssonar. Þrátt fyrir að engar hvalveiðar hafi verið stundaðar í tvö ár, og þær þar áður verið takmarkaðar, eru enn birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum sem enginn markaður er fyrir.“ 

„Stóra spurningin er sú hvað raunverulega vakir fyrir Kristjáni Loftssyni úr því að hann tapar aðeins fjárhagslega á veiðunum?“ spyrja samtökin í tilkynningu sinni.

Þar segir að fagráð um velferð dýra hafi komist að þeirri niðurstöðu sumarið 2023 að veiðar á langreyðum „stæðust vart lög um velferð dýra og að engin …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
3
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
6
StjórnmálÁtök í Flokki fólksins

„Kann­ast ekki við þá mynd sem hef­ur ver­ið dreg­in þar upp“

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir krafði Ingu Sæ­land svara um hver hafi ákveð­ið af­sögn Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar úr rík­is­stjórn. Í skila­boð­um sem að­stoð­ar­kona hans sendi hon­um í janú­ar sagði að ákvörð­un­in hefði ver­ið tek­in af „val­kyrj­un­um“. Inga seg­ir þau Guð­mund Inga greina á um að­drag­anda máls­ins og stend­ur við sín­ar ákvarð­an­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár