„20 mínútur yfir fjögur? Þessu trúði ég ekki“

Al­þingi hef­ur ver­ið slit­ið og fund­um frest­að til 8. sept­em­ber. Mörg mál klár­uð­ust á loka­metr­un­um á með­an önn­ur þurfa að bíða.

„20 mínútur yfir fjögur? Þessu trúði ég ekki“
Þórunn Sveinbjarnardóttir Forseti Alþingis sleit síðasta fundi Alþingis fyrir sumarfrí rétt í þessu.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sleit þingfundi rétt í þessu og er fundum frestað til 8. september.

Virtist hún nokkuð hissa á því hversu vel gekk að klára þingstörfin í dag. „20 mínútur yfir fjögur?“ heyrðist Þórunn segja í útsendingu frá Alþingi eftir að hún sleit fundi. „Þessu trúði ég ekki.“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagðist mundu sakna margra, ef ekki allra þingmanna, í sumar en sagði þingheim hafa gott af því að vera nokkrar vikur í sundur. Skömmu áður hafði Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks, flutt gamansama ræðu við mikla kátínu viðstaddra.

Frumvarp þingmanna Miðflokksins og annarra þess efnis að lengja gildistíma ökuskírteina eldri borgara var samþykkt og varð að lögum. Að tillögu allsherjar- og menntamálanefndar var hópi manns veittur ríkisborgararéttur.

Stuðningur við einkarekna fjölmiðla var lögfestur sem og frumvarp velferðarnefndar um matsverð fasteigna í Grindavík. Frumvarp umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra um meðferð virkjunarhugmynda í vindorku innan verndar- og orkunýtingaráætlunar …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár