Skipstjóri á Vesturlandi í milljarðaklúbbnum

Eymar Einarsson skip­stjóri á Akranesi er skatta­kóngur Vestur­lands og einn þeirra tólf einstaklinga sem komust í milljarða­klúbbinn á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár. Þá eru þrjú prósent Snæfellinga hátekju­fólk.

Skattakóngur Vesturlands
Skatta­kóngur Vest­ur­lands Eymar Ein­ars­son er með yfir millj­arð í árs­tekjur.

Eymar Einarsson skip­stjóri á Akranesi er skatta­kóngur Vestur­lands í ár. Hann er með 1.128.607.533 krónur í árstekjur og er því einn þeirra tólf einstaklinga á landi sem komust í milljarða­klúbbinn. Á landsvísu skipar Eymar 12. sæti Hátekju­listans.

Þrír einstaklingar á Vestur­landi eru í efstu hundrað sætum listans. Á eftir Eymari er það Sigríður Finsen hagfræðingur. Hún er búsett í Grunda­fjarðarbæ og er með 910.628.367 krónur í árstekjur. Næst kemur Jóhanna Halldóra Sigurðar­dóttir ferða­þjónustu­bóndi á Dröngum og fyrrum kennari. „Þetta kemur mér verulega á óvart. Það eru margir stórlaxar á svæðinu,“ sagði Jóhanna þegar Heimildin tjáði henni niður­stöðuna. Hún er með 910.628.367 krónur í árstekjur. Jóhanna býr í Dalabyggð en hún og eigin­maður hennar fluttust þangað fyrir rúmum tuttugu árum til þess að gerast skógar­bændur en Jóhanna starfaði einnig um tíma sem skóla­stjóri Lauga­gerðisskóla. Fjöl­skyldan rekur í dag Dranga Country Guesthouse en rekstur er að mestu í höndum sonar Jóhönnu …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár