Telja Heimilispakka Símans hafa verið skaðlega undirverðlagðan

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að tíma­bundin til­boð Símans á Heim­il­i­s­pakk­anum á árunum 2019 til 2021 hafi brotið gegn sam­keppn­is­lögum. Félagið hyggst taka til fullra varna í mál­inu.

Telja Heimilispakka Símans hafa verið skaðlega undirverðlagðan

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að Síminn kunni að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum með tíma­bundnum til­boðum á svo­nefndum Heim­il­i­s­pakka á árunum 2019 til 2021.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Ása hf., móð­ur­fé­lags Símans, til Kaup­hall­ar­innar. Símanum hefur borist and­mæla­skjal frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna rann­sóknar stofn­un­ar­innar á sölu fjar­skipta- og sjón­varps­þjón­ustu félags­ins í gegnum Heim­il­i­s­pakk­ann.

Selt of ódýrt

Samkvæmt frummati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem kemur fram í and­mæla­skjal­inu, fólust til­tekin tíma­bundin til­boð á Heim­il­i­s­pakk­anum í svo­nefndri skað­legri und­ir­verð­lagn­ingu. Eft­ir­litið telur hátt­sem­ina hafa farið gegn sam­keppn­is­lögum og skil­yrðum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti Símanum með ákvörðun árið 2015.

Í þeirr ákvörðun var Símanum gert að tryggja að ólíkir þjón­ustu­þættir væru nægi­lega aðgreindir, meðal ann­ars í kostn­að­ar­út­reikn­ingum, kynn­ingu, sölu, verði og skil­málum, og að þeir væru óháðir hver öðrum í verði og öðrum skil­málum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið útskýrði til­gang ákvæð­is­ins þannig að því væri meðal ann­ars ætlað að koma í veg fyrir sam­tvinnun við­skipta sem gæti raskað sam­keppni. Eft­ir­litið tók sér­stak­lega fram að slík sam­tvinnun gæti átt sér stað með verð­lagn­ingu sem hvatti neyt­endur til að kaupa tvær eða fleiri vörur saman.

Skaðleg und­ir­verð­lagn­ing felst almennt í því að mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tæki selji vöru eða þjón­ustu á svo lágu verði að sam­keppni geti raskast, til dæmis með því að keppi­nautar eigi erf­ið­ara með að keppa á mark­aðnum.

Ætla að taka til varna

And­mæla­skjal er ekki end­an­leg ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Með því er fyr­ir­tæk­inu gerð grein fyrir frummati eft­ir­lits­ins og gef­inn kostur á að svara því, koma á fram­færi athuga­semdum og leggja fram gögn áður en end­an­leg ákvörðun er tekin.

Í til­kynn­ingu Ása er lögð áhersla á að málið snúi að við­skipta­háttum frá árunum 2019 til 2021, eða fyrir fimm til sjö árum. Félagið bendir jafn­framt á að skil­yrði ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá 2015, sem vísað er til í and­mæla­skjal­inu, hafi síðar verið felld úr gildi af Lands­rétti.

Sá dómur féll í sept­em­ber 2025 og laut að því hvort Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði afgreitt beiðni Símans um nið­ur­fell­ingu skil­yrð­anna innan þess frests sem kveðið var á um. Lands­réttur taldi svo ekki vera og að skil­yrðin hefðu því fallið úr gildi. Dómurinn fól hins vegar ekki í sér nið­ur­stöðu um hvort skil­yrðin hefðu verið ógild á árunum 2019 til 2021, þegar hátt­semin sem nú er til rann­sóknar átti sér stað.

Félagið seg­ist ætla að nýta and­mæla­rétt sinn og „taka til fullra varna“ í mál­inu. Ásar segj­ast munu upp­lýsa um fram­gang þess eftir því sem til­efni sé til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár