Ungt fólk á Íslandi er minna jafnréttissinnað en kynslóðin á undan

Við­horfs­breyt­ing til jafn­rétt­is hef­ur orð­ið sam­kvæmt leið­toga­vísi­tölu Heims­þings kven­leið­toga sem var til um­ræðu nú á kven­rétt­inda­dag­inn. „Það er ver­ið að dæla al­veg svaka­lega miklu efni sem er hlað­ið kven­fyr­ir­litn­ingu á unga karl­menn,“ seg­ir Katrín Jak­obs­dótt­ir fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Ungt fólk á Íslandi er minna jafnréttissinnað en kynslóðin á undan
Áhyggjur af jafnrétti Katrín Jakobsdóttir telur það áhyggjuefni að jafnréttismálin séu látin sitja á hakanum. Mynd: Golli

„Það er verið að dæla alveg svakalega miklu efni sem er hlaðið kvenfyrirlitningu á unga karlmenn,“ sagði Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra í umræðum á kvenréttindadeginum nú í dag. Ungt fólk telur í auknum mæli að konur og karlar séu ekki jafn hæfir leiðtogar samkvæmt leiðtogavísitölu Heimsþings kvenleiðtoga, Reykjavik Index, sem mælir viðhorf samfélaga gagnvart leiðtogum út frá kynjajafnrétti.

Háskóli Íslands og Heimsþing kvenleiðtoga héldu viðburðinn Hverjum treystum við til forystu? í Loftskeytastöðinni og hófu þannig samstarf um úrvinnslu og greiningu gagna leiðtogavísitölunnar. Niðurstöður sýna að kynjafordómar hafa almennt aukist milli ára frá því að fyrsta könnun fór fram árið 2018.

„Á degi sem þessum er það holl áminning um að framfarir eru hvorki sjálfgefnar né óafturkræfar,“ sagði Finnborg Salome Steinþórsdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands, en hún hélt erindi um niðurstöðurnar á viðburðinum. „Við gefum okkur stundum að þetta komi allt með kalda vatninu, að við færumst skrefi nær …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár