Bláa lónið og Arctic Adventures sameinast

Tveir ferða­þjón­ust­uris­ar sam­ein­ast ef stjórn­ir fé­lag­anna og Sam­keppnis­eft­ir­litð sam­þykkja samruna Bláa lóns­ins og Arctic Advent­ur­es. Ekk­ert varð af samruna þess síð­ar­nefnda við Kynn­is­ferð­ir.

Bláa lónið og Arctic Adventures sameinast
Ferðaþjónusturisar sameinast Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, fagna fyrirhuguðum samruna.

Bláa lónið hf. og Arctic Adventures hf. hafa undirritað samkomulag um samruna og Bláa lónið hefur hafið formlegan undirbúning að skráningu á hlutabréfamarkað.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögunum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna.

Á dögunum var tilkynnt um að ekkert yrði af samruna Arctic Adventures og Kynnisferða, sem starfa undir vörumerkinu Icelandia.

Bláa Lónið er móðurfélag fyrirtækja á sviði upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðunar á meðan Arctic Adventures rekur meðal annars vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli.

„Það er markmið okkar að Bláa Lónið leiði áfram uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetja Ísland sem einn af fremstu upplifunar og vellíðunar áfangastöðum heims,“ er haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa Lónsins. „Kaup á Arctic Adventures er mikilvægt skref í þá átt. Upplifun og vellíðan er bæði okkar sérstaða og styrkleiki.“ …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár