Allt að 195 á lífeyri vegna langvinns covid

Fjöldi þeirra sem þiggja líf­eyri vegna eft­ir­stöðva covid-sýk­inga hef­ur tvö­fald­ast á tveim­ur ár­um. Þrír líf­eyr­is­þeg­anna eru á aldr­in­um 18 til 19 ára en þre­falt fleiri kon­ur en karl­ar eru með þessa grein­ingu.

Allt að 195 á lífeyri vegna langvinns covid
Sýnataka 195 manns eru með „þreytuheilkenni eftir veirusýkingu og eftirstöðvar covid“ sem fyrstu sjúkdómsgreiningu í læknisvottorði vegna lífeyris. Mynd: EPA

Fjöldi þeirra sem þiggja lífeyri frá Tryggingastofnun Ríkisins vegna langvinns covid hefur tvöfaldast á tveimur árum. Þetta kemur fram í svari Tryggingastofnunar við fyrirspurn Heimildarinnar.

Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa covid-19 sýkingar hafa verið kölluð long covid á ensku eða langvinnt covid á íslensku. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO skilgreinir langvinnt covid sem áframhald eða þróun nýrra einkenna þremur mánuðum eftir upphaf sýkingar. Þau einkenni þurfa að hafa varað í tvo mánuði og ekki eiga aðra skýra orsök.

1. desember 2025 voru 195 einstaklingar með þreytuheilkenni eftir veirusýkingu og eftirstöðvar covid  sem fyrstu sjúkdómsgreiningu í læknisvottorði, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun.

Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni fyrir tæpum tveimur árum voru 85 manns, þar af 60 konur og 25 karlar, á örorku- eða endurhæfingarlífeyri af þessum orsökum 1. desember 2023.

Til samanburðar voru átta manns með þessa greiningu 1. desember 2019, áður en covid-faraldurinn blossaði upp á Íslandi. Þar var líklega helst …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Aumingjansfolkiðsegiegnúbar
    0
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Það er ég viss um að flestir með svokallað long covid er marg sprautað svo það að segja að bólusetning minnki líkurnar á langvinnum veikindum er ansi ólíklegt..
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár