Íslenskir trumpistar segja óeirðirnar vera upphafið

Skemmd­ir voru unn­ar á hús­um og bíl­um í Belfast í nótt eft­ir að hæl­is­leit­andi gerði morð­tilraun. Ís­lensk­ir trump­ist­ar sjá fyr­ir sér að mál­ið marki upp­haf ein­hvers og hvetja jafn­vel til of­beld­is.

Íslenskir trumpistar segja óeirðirnar vera upphafið
Grímuklæddir mótmælendur Grímuklædd ungmenni loka vegi með brennandi braki í norðurhluta Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Lögreglan á Norður-Írlandi hvatti til stillingar eftir að hnífaárás hælisleitanda í Belfast náðist á myndband og varð til þess að öfgahægrimenn í Bretlandi kölluðu eftir mótmælum gegn innflytjendum. Mynd: AFP

„Þetta er mögulega byrjað,“ segir í færslu Íslenskra trumpista á Facebook,  um óeirðir í Belfast á Norður-Írlandi í kjölfar árásar hælisleitenda á mann.

„Breiðist til Íslands fljótlega, við erum komin með nóg,“ segir einn þeirra.  

Annar íslenskur trumpisti hvetur til fjöldamorða, eða þess að byssur verði þrívíddarprentaðar „og bara fucking drepa allt þetta pakk. Og alla í valdastjórninni sem ætla standa í vegi fyrir fólkinu í landinu sem byggði þetta allt upp!“

Á sama tíma óttuðust innflytjendur í Belfast að fara út af heimili sínu. 

Brunnir bílar og brotnir gluggar voru á víð og dreif um götur Belfast í dag þegar maður frá Súdan kom fyrir rétt vegna hrottalegrar hnífaárásar sem leiddi til „ógnvekjandi“ ofbeldis gegn innflytjendum á Norður-Írlandi.

Yfirvöld sökuðu öfgahægrisinnaða aðgerðarsinna – þar á meðal bandaríska billjónamæringinn Elon Musk – um að kynda undir sundrungu þegar óeirðaseggir í Belfast kveiktu í farartækjum og byggingum seint í gærkvöldi …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár