Leggja til nýja skilgreiningu „umhverfi“

Umhverf­is­mál eiga oft undir högg að sækja. Tveir Frakkar, annar heim­spek­ingur og hinn lög­fræð­ingur, telja að tungu­málið sé hluti af vand­anum og halda því fram að verndun líf­rík­is­ins eigi að ræða á allt öðrum laga­legum for­sendum. Þeir leggja til nýja skil­grein­ingu: „Búsetu­hæfi.“

Leggja til nýja skilgreiningu „umhverfi“

Umhverf­is­mál eiga oft undir högg að sækja. Náttúran er oft sett til hliðar í stjórn­málum, gleym­ist í fjár­laga­gerð og tapar í rétt­ar­sölum. Hún er oft talin vera sér­hags­muna­mál sem víkur fyrir brýnni málum.

Tveir Frakkar, annar heim­spek­ingur og hinn lög­fræð­ingur, telja að tungu­málið sé hluti af vand­anum og halda því fram að verndun líf­rík­is­ins eigi að ræða á allt öðrum laga­legum for­sendum.

Í nýrri bók sinni færa Baptiste Morizot og Laurent Neyret rök fyrir því að „búsetu­hæfi“, þau skil­yrði sem styðja við líf manna á jörð­inni, eigi að með­höndla sem grund­vall­ar­rétt­indi á borð við reisn og frelsi.

„Búsetu­hæfi er for­senda allra rétt­inda okkar og frelsis,“ sagði Morizot, rann­sak­andi við Aix-Marseille-háskóla, í sam­tali við AFP.

Jafnvel í Frakk­landi, þar sem umhverfið hefur stjórn­ar­skrár­stöðu, sagði Morizot að verndun nátt­úr­unnar sem grund­vall­ar­rétt­inda væri oft sett neðar en önnur grunn­gildi, jafn­vel þótt fólk geri sér ekki grein fyrir …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár