Verðlag stóð nánast í stað en verðbólga hjaðnar lítið

Mest til hækk­un­ar í mán­uð­in­um vó kostn­að­ur vegna bú­setu í eig­in hús­næði. Á móti lækk­aði verð á eldsneyti veru­lega vegna skatta­lækk­un­ar á bens­ín og dísel.

Verðlag stóð nánast í stað en verðbólga hjaðnar lítið
Lækkun Eldsneytisverð lækkaði hressilega í mánuðinum vegna aðgerða stjórnvalda, sem lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verðlag stóð nánast í stað milli mánaða í maí þrátt fyrir talsverða lækkun á eldsneytisverði í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á bensín og dísel. Verðbólga mælist nú 5,1 prósent, sem er lækkun frá síðasta mánuði, þegar hún mældist 5,2 prósent. 

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun hækkaði vísitala neysluverðs um 0,07 prósent frá apríl til maí. Hún mælist nú 684,3 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði hins vegar um 0,13 prósent milli mánaða.

Verðbólga yfir tólf mánaða tímabil hjaðnar því lítið þrátt fyrir nær óbreytt verðlag í maí og tímabundin áhrif skattalækkunar á eldsneyti. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 4,6 prósent á sama tímabili.

Mest til hækkunar í mánuðinum vó kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, eða reiknuð húsaleiga, sem hækkaði um 0,6 prósent. Áhrifin á vísitöluna voru 0,13 prósentustig.

Á móti lækkaði verð á eldsneyti verulega. Dísel lækkaði um 7,0 prósent og hafði 0,07 prósentustiga áhrif til lækkunar á vísitöluna. Bensín lækkaði um 7,3 prósent og dró vísitöluna niður um 0,14 prósentustig.

Lækkunin skýrist að stórum hluta af því að virðisaukaskattur á bensín og dísel var lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent þann 1. maí. Hagstofan metur heildaráhrif skattbreytingarinnar til 0,32 prósenta lækkunar á vísitölu neysluverðs.

Ef eldsneytisverð væri reiknað með óbreyttum 24 prósenta virðisaukaskatti hefði díselverð hækkað um 3,9 prósent milli mánaða og bensínverð um 3,6 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Vísitala neysluverðs í maí gildir til verðtryggingar í júlí.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár