Stórsókn Sjálfstæðisflokksins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vann ekki að­eins sinn stærsta kosn­inga­sig­ur í Reykja­vík í 16 ár, held­ur var hann í sókn um allt land.

Stórsókn Sjálfstæðisflokksins

Hildur Björnsdóttir leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í Reykjavík, með 32,5 prósent atkvæða og níu borgarfulltrúa. „Þetta eru bestu niðurstöður Sjálfstæðisflokksins í 16 ár,“ sagði hún sigurreif þegar hún ávarpaði kosningavöku Sjálfstæðisflokksins í nótt, en flokkurinn bætir við sig þremur fulltrúum í borginni. „Nú skulu borgarbúar fá breytingar.“

Hún er nú í lykilstöðu við myndum meirihluta í borginni. Sjálf benti hún á tvo augljósa kosti í stöðunni, að mynda tveggja flokka stjórn með Miðflokki eða þriggja flokka stjórn með Viðreisn og Framsóknarflokki. „Ég myndi gjarnan vilja mynda sterkan meirihluta með breiða skírskotun til fólksins í borginni,“ sagði hún í nótt. 

Þá kvaðst hún ætla að hefja meirihlutaviðræður í dag, en óformleg samtöl áttu sér stað í nótt. 

Miðflokkurinn fagnaði einnig í Reykjavík, þar sem hann náði þremur fulltrúum inn í borgarstjórn. Formaður flokksins hefur lýst gengi flokksins sem „pólitískum jarðskjálfta“. Nýtt afl sé komið í sveitarstjórnarmálin og hafi fest sig í sessi á landsvísu. Flokkurinn náði fulltrúum víða inn og var sá þriðji stærsti í borginni.

Í sókn á höfuðborgarsvæðinu

Sjálfstæðisflokkurinn var í stórsókn um allt land. Á höfuðborgarsvæðinu bætti flokkurinn nánast alls staðar við sig. 

Stærstur er flokkurinn í Garðabæ þar sem hann fékk 58 prósent atkvæða og átta fulltrúa af ellefu. Þar bætti hann einum manni við. Flokkurinn hélt einnig velli á Seltjarnarnesi með 51,9 prósent atkvæða og fjóra fulltrúa af sjö, jafn marga og áður. 

Í Kópavogi bætti Sjálfstæðisflokkurinn við tveimur mönnum og fékk sex fulltrúa af ellefu. Í Mosfellsbæ náði flokkurinn einum manni til viðbótar við það sem áður var, og fékk fimm fulltrúa af ellefu. Miðflokkurinn kom þar nýr inn með sinn fulltrúa. Það gerði Miðflokkurinn einnig i Hafnarfirði, sem er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn missti mann. Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði fékk þrjá menn og Framsókn jafn marga. 

Víða með hreinan meirihluta

Á Suðurlandi fékk Sjálfstæðisflokkurinn víða hreinan meirihluta.

Í sveitarfélaginu Ölfusi fékk Sjálfstæðisflokkurinn 69,3 prósent atkvæða, bætti við fulltrúa og endaði með fimm af sjö. Í Vestmannaeyjum er Sjálfstæðisflokkurinn með 57 prósent atkvæða og fimm fulltrúa af níu. Í Árborg fékk Sjálfstæðisflokkurinn 52 prósent atkvæða og sex fulltrúa af ellefu. Í Skaftárhreppi fékk hann 62,2 prósent atkvæða, bætti við sig tveimur fulltrúum og fékk þrjá af fimm. Í Rangárþingi eystra bætti hann við sig einum, fékk fjóra af sjö og 55,1 prósent atkvæða. 

Í Hveragerði endurheimti Sjálfstæðisflokkurinn stöðu sína sem stærsti flokkurinn. Þar fékk hann 43,9 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa af sjö. Hornfirðingar hölluðust frekar í átt að Framsókn, sem var sigurvegari kosninganna þar. Sjálfstæðisflokkurinn kom þar næstur með 26 prósent atkvæða.  

Á Suðurnesjum bætti Sjálfstæðisflokkurinn við sig á flestum stöðum. Þar af þremur fulltrúum í Vogum og tveimur í Reykjanesbæ, þar sem þeir voru fimm af ellefu. Í Grindavík bætti flokkurinn við einum fulltrúa og fékk þrjá, líkt og Framsókn. Á þessum stöðum nær flokkurinn um 40 prósentum atkvæða. Aðeins önnur mynd blasti þó við í Suðurnesjabæ, þar sem flokkurinn missti mann, náði tveimur inn og fékk 25 prósent atkvæða. 

Stærsti flokkurinn á Akureyri

Norður á Akureyri hlaut Sjálfstæðisflokkurinn flest atkvæði með 19,4 prósent og tvo fulltrúa af ellefu. Fjöldi bæjarfulltrúa flokksins helst þar óbreyttur. Fjórir flokkar náðu þar tveimur fulltrúum inn og gæti reynst flókið að mynda meirihluta.

Á Norðurlandi bætti flokkurinn einnig við sig fulltrúa í Skagafirði og náði hreinum meirihluta í Húnabyggð með fimm fulltrúa af níu. 

Á Akranesi hlaut Sjálfstæðisflokkurinn flest atkvæði, með 33,6 prósent. Þar fékk hann þrjá fulltrúa af níu, líkt og áður. Framsókn missir einn fulltrúa en Miðflokkurinn kemur nýr inn. Í Borgarbyggð bætti Sjálfstæðisflokkurinn síðan við einum fulltrúa og endaði með þrjá af níu, stærsti flokkurinn í því sveitarfélagi.

Vestur á Ísafirði var Framsóknarflokkurinn stærstur með 34 prósent atkvæða, en þar á eftir kom Sjálfstæðisflokkurinn sem hélt sínum tveimur fulltrúum. 

Þó að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hlotið flest atkvæði í Fjarðabyggð þá missti hann mann og fékk þrjá fulltrúa af níu. Bætti þó við sig í Múlabyggð, þar sem hann hlaut einnig flest atkvæði og fékk fjóra fulltrúa af ellefu. 

„Mig grunaði að kvöldið yrði gott en að það yrði svona stórkostlegt eins og raunin er, það er mjög ánægjulegt,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, á kosningavöku RÚV í nótt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár