Vara við því að nikótínpúðar skaði heila ungs fólks

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin segir tóbaks­fyr­ir­tækin sá fræjum far­ald­urs fíknar meðal ungs fólks.

Vara við því að nikótínpúðar skaði heila ungs fólks
Svens Eitt þekktasta vöru­merki nikótín­púða­sölu á Íslandi rekur 12 versl­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Víkingur

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) gaf út harða aðvörun í dag vegna hraðrar útbreiðslu nikótín­púða á heims­vísu og for­dæmdi ágengar mark­aðs­að­ferðir tóbaks­iðn­að­ar­ins til að ánetja ungt fólk.

Nikótín­púðar, sem eru litlir skammta­pokar sem komið er fyrir milli góms og varar og losa nikótín í gegnum slím­húð munns­ins, eru í óða­önn að end­ur­móta alþjóð­legan tóbaks- og nikótín­markað, að því er fram kemur í nýrri skýrslu WHO.

„Rík­is­stjórnir sjá notkun þess­ara vara breið­ast hratt út, sér­stak­lega meðal ung­linga og ungs fólks sem er beitt blekk­ing­ar­að­ferðum á ágengan hátt,“ sagði Etienne Krug, yfir­maður deildar WHO um heilsu­fars­lega áhrifa­þætti, heilsu­efl­ingu og for­varnir.

Vörurnar, sem inni­halda nikótín og yfir­leitt einnig sæt bragð­efni, „eru hann­aðar til að valda fíkn,“ var­aði hann við í yfir­lýs­ingu.

Nikótín­púðar eru oft mark­aðs­settir sem „nútíma­legir“, „lítið áber­andi“ og „tóbaks­lausir“ og breið­ast svo hratt út um lönd að reglu­gerðir ná ekki að halda í við þró­un­ina, var­aði WHO við í fyrstu skýrslu sinni um vör­urnar.

Sjö milljarða dala markaður

Sala á nikótín­púðum hafði náð yfir 23 millj­örðum ein­inga árið 2024 – sem er yfir 50 pró­senta aukn­ing frá fyrra ári, sagði í skýrsl­unni.

Og alþjóð­legur mark­aður fyrir nikótín­púða var met­inn á tæpa 7 millj­arða dala á síð­asta ári, bætti hún við, en salan var mest og jókst hrað­ast í Norður-Ameríku.

Eitt vin­sælt vöru­merki nikótín­púða sem var í boði í um 9.000 versl­unum í Banda­ríkj­unum árið 2017 var til sölu í yfir 150.000 versl­unum árið 2024, benti hún á.

„Þetta er ekki bara mark­aðs­þróun; þetta er lýð­heilsu­á­skorun sem þró­ast hratt,“ sagði Vinayak Prasad, yfir­maður Tobacco Free Ini­ti­ative hjá WHO, við frétta­menn.

WHO lagði áherslu á að nikótín sjálft sé „mjög ávana­bind­andi“ og sér­stak­lega skað­legt fyrir ungt fólk þar sem heil­inn er enn að þroskast.

Nikótínn­eysla á ung­lings­árum getur haft áhrif á heila­þroska, þar á meðal áhrif á athygli og nám, og eykur lík­urnar á lang­tíma­fíkn og notkun, sagði í skýrsl­unni.

Í skýrsl­unni var lögð áhersla á vel skjal­festa heilsu­fars­á­hættu sem fylgir nikótínn­eyslu, þar á meðal áhættu fyrir hjarta- og æða­kerfi og geð­heilsu.

Sælgætisbragð

Hún gagn­rýndi útbreiddar aðferðir iðn­að­ar­ins til að höfða til ungs fólks, þar á meðal flottar umbúðir og bragð­teg­undir eins og kúlutygjó og gúmmí­bangsar.

Mark­aðs­setn­ing með áhrifa­völdum og mikil kynn­ing á sam­fé­lags­miðlum var einnig notuð, auk kost­unar á tón­leikum og íþrótta­við­burðum eins og Formúlu 1, sagði í skýrsl­unni.

Og hún for­dæmdi skila­boð sem ýttu undir mögu­leik­ann á „lítið áber­andi“ notkun og að forð­ast upp­götvun for­eldra og kenn­ara, með slag­orðum eins og: „Gleymdu regl­unum“ og „Hvenær sem er, hvar sem er“, ásamt myndum af stöðum þar sem reyk­ingar eru venju­lega bann­aðar, eins og á veit­inga­stöðum og í almenn­ings­sam­göngum.

Prasad gagn­rýndi til­raunir fyr­ir­tækj­anna til að kynna nikótín­púða sem örugg­ari en hefð­bundnar sígar­ettur, og jafn­vel sem hjálp­ar­tæki fyrir reyk­inga­fólk til að hætta.

„Ef þessar vörur væru í raun og veru fyrst og fremst ætl­aðar sem hjálp­ar­tæki fyrir full­orðna reyk­inga­menn til að hætta, hvers vegna eru þær mark­aðs­settar með sæl­gæt­is­bragði?“ spurði hann.

„Nikótín­púðar eru ekki áhættu­lausar vörur og ætti ekki að mark­aðs­setja þá á þann hátt að skapa nýja kyn­slóð fíknar“.

Jorge Alday, yfir­maður alþjóð­legu eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar STOP sem fylgist með tóbaks­iðn­að­inum, tók í sama streng og lýsti nikótín­púðum sem „litlum fræjum far­ald­urs sem tóbaks­fyr­ir­tækin eru að sá alls staðar“.

Í yfir­lýs­ingu sem send var til AFP var­aði hann við því að „mark­aðs­setn­ing nikótín­púða í dag lík­ist mjög því sem við sáum fyrir 10 árum áður en rafrettu­far­ald­ur­inn meðal ung­menna hófst“.

WHO hvatti lönd til að herða reglu­gerðir til að takast á við málið.

Eins og staðan er núna hafa um 160 lönd engar sér­stakar reglu­gerðir um nikótín­púða.

Aðeins 16 banna sölu þeirra, en 32 önnur hafa ein­hverjar reglu­gerðir, sagði í skýrsl­unni.

Í skýrsl­unni var meðal ann­ars kallað eftir banni eða ströngum tak­mörk­unum á bragð­efnum í nikótín­púðum og banni við aug­lýs­ingum, kynn­ingu og kostun á vör­unum.

Hún hvatti einnig til strangrar ald­urs­stað­fest­ingar og smá­sölu­eft­ir­lits, skýrra heilsu­við­var­ana og hlut­lausra umbúða, og hárra skatta til að draga úr því að fólk hafi efni á vör­unum.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Fyrir allnokkrum árum, fékk ungur maður krabbamein í aðra kinnina, því hann byrjaði ungur að taka í vörina. Á eftir var kinnin svo þunn að það sást í gegnum hana. Gera nikótínpúðar ekki það sama, þetta er jú tóbak eins og áður var tekið í vörina án umbúða? Það þyrfti að sýna í sjónvarpinu, þannig tilfelli og líka að tennurnar losna með tímanum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Nikótínfaraldurinn

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár