Nikótínfíknir Íslendingar kaupa púða fyrir milljarða

Sann­kallað gullæði hefur gripið um sig í sölu nikótín­púða til Íslend­inga. Varan er enda mjög ávana­bind­andi. „Ég próf­aði þetta einu sinni og svo var erfitt að hætta þessu,“ segir mennta­skóla­nemi sem hefur ekki náð 18 ára aldri. Púðar sem fram­leiddir eru á Íslandi eru orðnir að útflutn­ings­vöru.

„Það er erfitt að hætta þessu en þetta er líka dýrt sport,“ segir sautján ára gam­all mennta­skóla­nemi sem ánetj­að­ist nikótín­púðum á síð­asta ári. 

Hann er í hópi þús­unda ung­menna sem hafa á und­an­förnum árum byrjað að nota nikótín­púða á Íslandi. Vel rúm­lega þriðj­ungur ungra karla nota nikótín og stór hluti ungra kvenna gera það líka. Nikótín­púða­iðn­að­ur­inn á Íslandi veltir enda millj­örðum króna á hverju ári. Svo virð­ist raunar vera að erfitt sé að tapa á því að flytja inn og selja Íslend­ingum nikótín. Vörurnar eru enda mjög ávana­bind­andi. 

Heil­brigð­is­yf­ir­völd víða um heim hafa miklar áhyggjur af notkun nikótín­púða, þar á meðal á Íslandi. Mjög tak­mark­aðar upp­lýs­ingar liggja hins vegar fyrir um áhrif nikótíns þegar þess er neytt án tóbaks á heilsu og lík­ama fólks. Vís­bend­ingar eru þó um að það hafi áhrif á ungt fólk, sem á Íslandi er langstærsti not­enda hóp­ur­inn. 

Heild­ar­hagn­aður helstu versl­ana sem selja …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Nikótínfaraldurinn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár