„Laða til sín heilar kynslóðir fíkla“

Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin varar við far­aldri niktótín­fíknar hjá börnum og segja engar sann­anir fyrir því að veip sem stað­geng­ill fyrir reyk­ingar leiði til heild­ar­á­vinn­ings.

Svens
Svens Nikótín-fígúran Svens hefur þótt vera mark­aðs­lega árang­urs­rík leið til að ná til barna með nikótín. Mynd: Golli

Lokkandi, einnota rafrettur og nikótín­púðar með sæl­gæt­is­bragði eru meðal nýrra vara sem beint er að ungu fólki og ýta undir nýja bylgju tóbaks- og nikótín­fíknar, var­aði Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) við í dag.

Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, yfir­maður Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, sagði við opnun alþjóð­legrar ráð­stefnu um tóbaks­varnir að hann harm­aði að sífellt fleiri börn lað­ist að nýju vör­unum.

„Skólar eru nýja víg­línan í stríð­inu gegn tóbaki og nikó­tíni, þar sem fyr­ir­tæki eru virk í að laða til sín heilar kyn­slóðir fíkla,“ var­aði hann við.

Í skýrslu WHO sem gefin var út í síð­asta mán­uði er áætlað að nærri 15 millj­ónir ung­linga á heims­vísu noti nú rafrettur, sagði hann á 11. fundi aðild­ar­ríkja ramma­samn­ings WHO um tóbaks­varnir (FCTC).

Tedros fagn­aði þeim mikla árangri sem náðst hefur á síð­ustu ára­tugum í að sporna við þessum ban­væna ávana, þótt enn sé áætlað að meira en átta millj­ónir manna á heims­vísu deyi árlega af völdum tóbakstengdra sjúk­dóma.

Síðustu 20 ár „hefur tóbaksneysla meðal ungs fólks minnkað um þriðj­ung á heims­vísu,“ sagði hann og bætti við að það hefði hvatt „tóbaks­fram­leið­endur til að þróa nýjar vörur til að laða að nýja við­skipta­vini.“

Heil­brigð­is­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna varpar fram efa­semdum um mark­aðs­setn­ingu tóbaks­iðn­að­ar­ins á veip­vörum og öðrum nýjum vörum sem örugg­ari val­kostum við hefð­bundnar tóbaks­vörur og sem hjálp­ar­tæki til að hætta að reykja.

„Engar sann­anir eru fyrir nettó­á­vinn­ingi þeirra fyrir lýð­heilsu og sífellt fleiri vís­bend­ingar eru um skað­semi þeirra,“ sagði Tedros og harm­aði að slíkar vörur séu not­aðar til að laða ungt fólk að reyk­ingum.

Nýleg skýrsla WHO, benti hann á, sýndi að „í 63 löndum þar sem gögn eru til­tæk er algengi veip­notk­unar meðal ung­linga að með­al­tali níu sinnum hærra en meðal full­orð­inna.“

„Tökum það skýrt fram, fyr­ir­tækin sem fram­leiða þessar vörur eru ekki knúin áfram af skaða­minnkun eða lýð­heilsu. Þau eru knúin áfram af einu og aðeins einu, gríð­ar­legum hagn­aði fyrir hlut­hafa sína.“

Yfir­maður WHO sagði að stofnun hans skor­aði á öll lönd að setja reglur um nikótín­púða, rafrettur og upp­hitað tóbak „að minnsta kosti jafn strangt og þau setja reglur um hefð­bundnar tóbaks­vörur.“

Hann fagn­aði því að nokkur lönd hefðu alfarið bannað slíkar vörur og lagði áherslu á að „þau sem ekki hafa gert það ættu að beita ströngu eft­ir­liti með bragð­efnum, umbúðum, mark­aðs­setn­ingu og sölu­að­ferðum til að verj­ast áhrifum iðn­að­ar­ins og fram­fylgja ald­urs­tak­mörk­unum.“

Eins og Heim­ildin greindi frá í síð­asta mán­uði hefur heild­ar­hagn­aður helstu versl­ana sem selja nikótín­púða og tengdar vörur numið 1,8 millj­arði króna frá því að tóbaks­lausar nikótín­vörur fóru að ryðja sér til rúms hér á landi. Á síð­asta ári nam hagn­aður umsvifa­mestu sér­versl­anna meira en hálfum millj­arði króna. Nú eru meira en þriðj­ungur Íslend­inga undir þrí­tugu neyt­endur nikótíns.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Nikótínfaraldurinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár