Í mars fluttist ég tímabundið til Nuuk á Grænlandi. Í flugvélinni á leiðinni horfði ég yfir snævi þakinn Grænlandsjökul og pírði augun til að koma auga á ísbirni þótt ég vissi mætavel að slíkt væri ansi langsótt.
Við fengum fallegt aðflug, Nuuk-fjörðurinn var prýddur fallegum ísjökum og hvítum rákum eftir bátana sem sigldu inn og út fjörðinn. Í fyrradag voru hnúfubakar á sundi og í gær kom heimsending af ferskum rauðmaga sem var síðan verkaður í eldhúsinu heima. Hér koma fjölskyldumeðlimir með auðlindir hafsins og deila með öðrum.
„Í fyrradag voru hnúfubakar á sundi“
Í dag á David Attenborough hundrað ára afmæli. Hans helstu skilaboð upp á síðkastið hafa snúist um mikilvægi verndunar hafsins. Í Nuuk geng ég fram hjá lágstemmdri en tignarlegri styttu af Sassuma arnaa, móður hafsins, í flæðarmálinu. Ég fylgist með bálskotnu arnarpari svífa hlið við hlið um bláan himininn og hóp af æðafugli baða sig …





























































Athugasemdir