Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar

Flokk­ur fólks­ins má hafa færra starfs­fólk í vinnu á kostn­að Al­þing­is eft­ir að Guð­mund­ur Ingi Krist­ins­son þing­mað­ur gekk úr flokkn­um. Fjöldi starfs­manna ræðst af þingstyrk hvers flokks og riðl­ar úr­sögn­in skipt­ingu að­stoð­ar­manna á milli flokka. Fram­sókn má í stað­in bæta við sig.

Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar
Ráðherra Guðmundur Ingi var varaformaður Flokks fólksins og um tíma ráðherra flokksins. Brotthvarf hans úr flokknum þýðir að breyting er á skiptingu starfsfólks á kostnað þingsins á milli flokka. Mynd: Golli

Brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar, þingmanns og fyrrverandi ráðherra, úr Flokki fólksins felur það í sér að starfsmönnum flokksins fækkar um einn.

„Það lá alveg fyrir,“ segir Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, sem var á þingflokksfundi þegar náðist í hann og sagðist ekki geta tjáð sig. „Það fækkar um einn hjá okkur og fjölgar hjá Framsókn.“

Flokkarnir mega ráða sér starfsfólk á kostnað Alþingis út frá þingmannafjölda hvers flokks. Eftir að Guðmundur Ingi heltist úr lestinni hjá Flokki fólksins breyttist þessi útreikningur Framsókn í hag.

Framsóknarflokkurinn má því ráða sér nýjan starfskraft. Annar af tveimur núverandi starfsmönnum Framsóknar er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður flokksins, sem var tímabundið ráðin hjá þingflokknum.

Ekki liggur fyrir hver mun láta af störfum hjá Flokki fólksins. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Ætli það hafi verið meining og vilji Guðmundar af styrkja Framsókn?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
2
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
6
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár