„Loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni“

Eig­andi Smárík­is­ins hef­ur ver­ið fund­ið sek­ur um að brjóta gegn lög­um um áfeng­is­sölu og sekt­að­ur um hundrað þús­und krón­ur. Mál­ið hef­ur ver­ið póli­tískt bit­bein um ára­bil.

„Loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni“
Árni Guðmundsson Formaður samtakanna Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum kærði sig sjálfan til þess að hvetja lögreglu áfram í rannsókn sinni.

„Ég segi bara loksins, loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni,“ segir Árni Guðmundsson, lektor við Háskóla Íslands í tómstunda- og félagsmálafræði og formað­ur for­eldra­sam­taka gegn áfengisaug­lýs­ing­um. Hann gekk svo langt að kæra sig sjálfan fyrir ólögleg áfengiskaup fyrir nokkrum árum síðan. Það gerði hann til þess að mótmæla seinagangi lögreglunnar í rannsókn á smásölu áfengis á netinu. Nú liggur loks fyrir dómur, þó ekki tengdur máli Árna, heldur vegna sölu Smáríksins á hvítvínsbelju. Var Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, sektaður um hundrað þúsund krónur fyrir söluna en dómurinn hefur ekki enn verið birtur.

Pólitískt bitbein

Málið hefur verið sérkennilegt pólitískt bitbein. ÁTVR lét reyna á netsölu áfengis en því máli var vísað frá héraðsdómi árið 2022. Málinu var ekki áfrýjað og mátti rekja þá ákvörðun til þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar. Síðan þá hefur smásala áfengis verið í lagalegu tómi ef svo má að orði komast, en Forvarnarsamtökin voru þó ósammála því og kærðu smásöluna til lögreglu á þeim forsendum að áfengislöggjöfin væri fullkomlega skýr hvað smásölu varðar. Fyrrverandi fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, var síðar gagnrýndur harðlega fyrir að hvetja lögreglu til þess að fullrannsaka þessi mál eftir umtalsverðan drátt á rannsókninni og var hann sakaður um óeðlileg afskipti af framkvæmdarvaldinu í kjölfarið. Það var eftir að ríkissaksóknari krafðist þess að fá svör vegna seinagangs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í rannsókn á netsölu á áfengi.

Hugsi yfir Hagkaup

Í umfjöllun Vísis, sem greindi fyrst frá niðurstöðu héraðsdóms, kemur fram að félagið sem seldi að endingu áfengið hér á landi hafi keypt það af íslenskum heildsala en ekki beint af erlendum aðila, eins og heimilt er samkvæmt reglum EES samningsins.

Var því niðurstaðan sú að fyrirtækið gerðist brotlegt við áfengislögin með því að brjóta gegn einkaleyfi ÁTVR.

Árni er hugsi yfir málinu og bendir á að fleiri selji áfengi í smásölu og nefnir þar Hagkaup sérstaklega.

„Það er engin lagaleg óvissa eftir, að okkar mati, og því hljóta lífeyrissjóðirnir að hugsa sinn gang varðandi áfengissölu í verslunum sem þeir eiga að stórum hluta,“ segir Árni sem er fullviss um að málið sé borðleggjandi. „Það væri í okkar huga eiginlega bara kjánaskapur að vera að áfrýja þessu, enda skýr niðurstaða í málinu,“ segir Árni sem lítur á niðurstöðuna sem fullnaðarsigur.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Í ljósi grafalvarlegra afleiðinga netsölu á áfengi á lýðheilsu, milljarða þjóðhagslegt tjón á ári og ómæld óhamingja fjölmargra fjölskyldna. Er ekki nauðsynlegt að skipa rannsóknarnefnd til að komast til botns í hvers vegna rannsókn málsins tók þetta hreint ótrúlega langan tíma? Rannsóknarnefndir hafa verið skipaðar af mun minna tilefni. Þjóðin á rétt á skýringu. Var eitthvað óeðlilegt á ferðinni?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Fólk er hrætt”
1
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.
„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
3
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
5
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
6
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár