Varaformaður Miðflokksins, Snorri Másson, segir „vonir hafa brugðist“ varðandi Donald Trump Bandaríkjaforseta, eftir að forsetinn hótaði í dag að „eyða siðmenningu“ Írans.
Áður hafa samflokksmenn Snorra vakið máls á því að íslensk stjórnvöld eða Alþingi veiti Donald Trump verðlaun.
„Heil siðmenning mun deyja í kvöld og verður aldrei endurvakin,“ sagði Trump á samfélagsmiðli sínum í dag, en útilokaði ekki að „eitthvað dásamlegt“ myndi gerast sem fælist væntanlega í því að það sem eftir er af írönskum stjórnvöldum ákveði að leyfa alla skipaumferð um Hormuz-sund að nýju, en tepping hennar eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hefur hækkað olíuverð verulega.
Snorri Másson setur sig í fótspor stuðningsfólks Trumps þegar hann lýsir vonbrigðum með hótun hans um eyðileggingu siðmenningar.
„Vonbrigði og skilningsleysi hljóta að vera ráðandi tilfinningar hjá mörgum kjósendum sitjandi Bandaríkjaforseta, sem óskuðu sér breyttrar nálgunar á landamærum, betri efnahags og minna woke-brjálæðis,“ segir Snorri í Facebook-færslu.
„Ekki síst kusu menn Trump þó vegna boðaðrar friðarnálgunar í stað frekari inngripa Bandaríkjahers á veraldarsviðinu. Ekki aðeins hafa þessar vonir brugðist, heldur er farið af fullum þunga í þveröfuga átt og frumkvæði haft að stigmagnandi styrjaldarátökum.“
Þá lýsir Snorri áhyggjum af hernaðaraðgerðum á óþekktum skala í nútímanum.
„Nú síðast virðist forsetinn vera að bera fram hótanir um hernaðaraðgerðir á óþekktum skala í nútímasögunni, sem gætu orðið upphafið að atburðarás sem enginn veit hvar endar. Allra helst vonar maður að þetta séu innantómar hótanir Bandaríkjaforseta sem er kominn í krappa stöðu og að í staðinn setjist menn við samningaborðið, en það afsakar aldrei þennan óboðlega málflutning.“
Meðal annarra íhaldssamra stjórnmálamanna sem hafa tekið afstöðu gegn Trump, þrátt fyrir fyrri stuðning, eru Nigel Farage, formaður Umbótaflokksins í Bretlandi.
Formaðurinn vildi veita Trump verðlaun
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, lagði að forseta Alþingis í haust að tilnefna Donald Trump til friðarverðlauna Nóbels úr pontu Alþingis.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur ekki tjáð sig um yfirlýsingar Trumps nú, en um páskana gagnrýndi hann aftur íslenska utanríkisráðherrann fyrir að mistakast að efla nægilega vel samstarf við Bandaríkin á sviði varnarmála.
Síðasta haust vakti Sigmundur máls á því í ræðustól á Alþingi að Bandaríkin hefðu fest sig í sessi sem „leiðandi ríki í alþjóðamálum“. Hann spurði með hvaða hætti forsætisráðherra hyggðist efla tengslin við Bandaríkin „og styrkja samstarf við þau í sessi“.
„Ég held það færi vel á því að bjóða Bandaríkjaforseta til Íslands. Veita honum kannski einhver verðlaun“
Þá þrýsti Sigmundur á forsætisráðherra að eiga nánara samband við Trump og bjóða honum til Íslands.
„Mér skilst að hæstvirtur forsætisráðherra hafi ekki enn leitast við að ná beinu talsambandi við forseta Bandaríkjanna. Verður forseta Bandaríkjanna jafnvel boðið til Íslands? Hér á Íslandi eru margir áhugaverðir golfvellir. Á sumrin er hægt að spila miðnæturgolf. Og ég held það færi vel á því að bjóða Bandaríkjaforseta til Íslands. Veita honum kannski einhver verðlaun og efla og styrkja samstarf þessara ríkja, ekki veitir af að hafa öfluga bandamenn þegar við horfum upp á vandræðagang vina okkar í Evrópu.“
Snorri varð ósáttur í janúar síðastliðnum þegar Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gagnrýndi sendiherraefni Bandaríkjanna á Íslandi fyrir að grínast með að gerast landsstjóri, mitt í hótunum Bandaríkjaforseta um að taka Grænland með valdi.




















































Athugasemdir