Þetta er staðan í frosnu aðildarviðræðunum við ESB

Sex samn­ingskafl­ar eru óopn­að­ir í að­ild­ar­við­ræð­um við ESB og í fjór­um þeirra ligg­ur samn­ings­staða ekki fyr­ir, þar á með­al um sjáv­ar­út­veg og land­bún­að. Ís­lensk stjórn­völd og fram­kvæmda­stjórn ESB líta svo á að um­sókn­in frá 2009 sé enn gild en suma kafla gæti þurft að opna sem áð­ur var lok­að.

Þetta er staðan í frosnu aðildarviðræðunum við ESB
Utanríkisráðherrar Gunnar Bragi Sveinsson tók við af Össuri Skarphéðinssyni í utanríkisráðuneytinu 2013 og setti ESB-viðræður á ís. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Af 33 efnisköflum í samningaviðræðum Íslands við Evrópusambandið hafa 27 verið opnaðir og 11 af þeim lokað. Alls 16 kaflar eru enn opnir og sex kaflar hafa ekki verið opnaðir, meðal annars þeir sem snúa að sjávarútvegi og landbúnaði, sem talin eru ein mikilvægustu álitaefnin. Flestir af þeim köflum sem hefur verið lokað eða hafa verið opnaðir varða málefni sem falla undir EES-samninginn en suma kafla gæti þurft að opna á ný verði ákveðið að halda viðræðum áfram.

Þannig var staðan fyrir alþingiskosningar 2013, rúmu einu og hálfu ári eftir að efnislegar viðræður við ESB hófust. Vorið 2013 tók ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks við af ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem sótt hafði um aðild árið 2009 eftir atkvæðagreiðslu á Alþingi. Ný ríkisstjórn stóð ekki við loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna en utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, afhenti bréf til formennsku ESB og framkvæmdastjórnar þess efnis að aðildarviðræðum yrði ekki …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.
Þegar hægrið vildi skoða ESB, evru og þjóðaratkvæðagreiðslu
ÚttektHorft til Evrópu

Þeg­ar hægr­ið vildi skoða ESB, evru og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son vildu skoða ESB-um­sókn og upp­töku evru eft­ir banka­hrun þar til vinstri­stjórn var mynd­uð. Þeir lof­uðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eft­ir að þeir komust í rík­is­stjórn en ann­ar leið­ir nú bar­áttu stjórn­ar­and­stöð­unn­ar gegn henni og hinn stýr­ir Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár