Loftárás í Líbanon Maður gengur í gegnum úthverfi í suð­ur­hluta Beirút eftir loft­árás Ísraels fyrir helgi. Mynd: AFP

Óttast að Íransstríðið skapi varanlegan flóttamannastraum

Milljón manns eru á flótta í Líbanon og hætta er á glund­roða í Íran.

Ef stríðið í Mið-Aust­ur­löndum breið­ist út gæti það skapað „var­an­legan“ flótta­manna­vanda, var­aði æðsti erind­rekstr­ar­full­trúi Tyrk­lands við á þriðju­dag, á sama tíma og Líbanon sagði að sprengju­árásir Ísraels hefðu hrakið yfir milljón manns á flótta.

Nú síð­ast í gær­kvöldi sögðu Ísraelar íbúum í borg­inni Tyre, þar sem 170 þús­und manns búa, að leggja á flótta vegna yfir­vof­andi árása. Ísraelar og Banda­ríkja­menn hafa drepið marga æðstu ráða­menn í Íran, nú síð­ast Gholamreza Soleimani, yfir­mann Basij sveit­ar­innar, og hafa Ísraelar heitið því að drepa nýja æðstaklerk­inn, Mojtaba Kahmenei, son þess sem var drep­inn í upp­hafi stríðs­ins.

Flóttamannastraumur yfirvofandi

„Ef stríðið ... breið­ist út er mögu­leiki á að þetta breyt­ist í var­an­legan flótta­manna­vanda þar sem flótta­menn leita skjóls utan landamæra sinna,“ sagði Hakan Fidan utan­rík­is­ráð­herra á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi með kanadíska utan­rík­is­ráð­herr­anum Anitu Anand í gær.

„Þetta þarf að stöðva eins fljótt og auðið er.“

Líbanon dróst inn í stríðið í Mið-Aust­ur­löndum þann 2. mars þegar Hezbollah, með stuðn­ingi Írans, réðst á Ísrael til að bregð­ast við dráp­inu á Ali Khamenei, æðsta leið­toga Írans, í árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran.

Síðan þá hafa yfir milljón manns skráð sig á flótta, sögðu líbönsk yfir­völd á mánu­dag – sem er meira en sjötti hluti allra íbúa lands­ins.

Frétt­irnar bár­ust á sama tíma og ísra­elski her­inn sagð­ist hafa hafið tak­mark­aða land­hern­að­ar­að­gerð gegn Hezbollah í suð­ur­hluta Líbanons.

„Mann­úð­ar­á­standið í Líbanon er mikið áhyggju­efni og gæti versnað ef til land­árásar kemur þar,“ sagði Anand á blaða­manna­fund­inum.

Varanlegur skaði

Fidan sagði að stríðið „gæti leitt til var­an­legs skaða ... milli landa á svæð­inu“ og benti á að átökin „breið­ist út um Líbanon og að hlut­irnir verði einnig mun flókn­ari í Írak.“ Öflugur, vopn­aður hópur sem styður Íran gaf frá sér yfir­lýs­ingu í dag og krafð­ist þess að allir erlendir her­menn yfir­gæfu landið.

Að sögn Fidans hefur Tyrkland „unnið mark­visst að því á diplómat­ískum vett­vangi frá því að stríðið hófst að koma í veg fyrir að þessi vandi stig­magn­ist,“ og sagði að hann myndi ferð­ast til nokk­urra landa á svæð­inu í vik­unni.

Anand sagði að Kanada kynni að meta diplómat­íska við­leitni Tyrk­lands og „hlut­verk þess sem milli­göngu­að­ila í núver­andi átökum í Mið-Aust­ur­löndum“ en lýsti jafn­framt yfir ein­dreg­inni and­stöðu sinni við „for­kast­an­legar“ árásir Írans á þjóðir á svæð­inu.

„Kanada for­dæmir algjör­lega þessar hefnd­ar­árásir ... Þessar hefnd­ar­árásir verða að hætta, hvort sem þær eru í Doha eða jafn­vel gegn þessu landi,“ sagði hún.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár