Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleini, er einn hinna handteknu í ofbeldismáli á Akureyri þar sem þremur mönnum er gefið að sök að hafa nauðgað konu í félagi við tvo aðra menn. Morgunblaðið greindi frá því í dag. Fyrrverandi kærasta Kleina, Hafdís Björg Kristjánsdóttir, opnaði sig á samfélagsmiðlum í gær þar sem hún sagði Kleina hafa beitt sig ofbeldi á meðan þau voru enn í sambandi. Hún lýsir mikilli vanmáttarkennd og að hún eigi erfitt með að finna ekki til ábyrgðar í málinu.
„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni. Samviskubitið er að drepa mig,“ skrifaði hún á Facebook í morgun.

Þar lýsir hún alvarlegu ofbeldissambandi þar sem hún óttaðist meðal annars um líf sitt. Hún segist hafa misst trúna á kerfinu þar sem Kleina var ítrekað sleppt úr haldi eftir að hafa beitt hana ofbeldi.
„Ég spurði lögregluna í síðustu skýrslutöku hversu oft þeir ætluðu að handtaka manninn án þess að loka hann inni. Þeir sögðu að þeir væru sjálfir að berja hausnum í vegg yfir þessu blessaða kerfi,“ skrifar Hafdís Björg og lýsir því þegar hún gafst upp.
„Ég gafst upp á kerfinu eftir að ég stóð fyrir framan útidyrahurðina með hníf í bakinu á meðan verið var að lýsa fyrir mér hvernig ég yrði drepin ef lögreglan kæmi inn um dyrnar. En ég ætla ekki að telja upp viðbjóðinn sem ég gekk í gegnum, því ég kenni mér enn um hversu langt og lengi ég leyfði þessu að ganga,“ segir Hafdís Björg.
DV greindi frá því í gær að þrír menn hefðu verið handteknir á hóteli í miðbæ Akureyrar aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar er Kleini einn hinna handteknu, líkt og Morgunblaðið greinir frá.
Morgunblaðið greindi svo frá því að konan hefði verið flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri með talsverða áverka eftir árásina.
Heimildin greindi frá því árið 2023 að Kleini hefði verið dæmdur fyrir ofbeldisfullt rán á Spáni. Sjálfur hélt Kleini því fram að hann hefði verið í haldi fyrir „fyllerísslagsmál“ og baðst síðar afsökunar á því.
DV greinir frá því að myndband af árásinni hafi farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og að árásin hafi staðið yfir klukkustundum saman. Mennirnir eru í haldi lögreglunnar. Ekki er ljóst hvort mennirnir hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðahald.















































Athugasemdir