Prakkarastrik Davíðs: Kveikti á gosbrunni til þess að bregða vegfarendum

Davíð Oddssyni var boðið í hádeg­is­verð í Ráðhúsi Reykja­víkur og ját­aði að hafa stundað sér­kenni­legt prakk­ara­strik.

Prakkarastrik Davíðs: Kveikti á gosbrunni til þess að bregða vegfarendum
Einar og Davíð Einar Þor­steins­son bauð Davíð Oddssyni í hádeg­is­verð þegar hann var borg­ar­stjóri. Mynd: Einar Þorsteinsson/Facebook

„Ég bauð Davíð Oddssyni í hádeg­is­mat á skrif­stof­una þegar ég var borg­ar­stjóri,“ segir Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, í færslu á Facebook þar sem hann segir frá skemmti­legum hádeg­is­verð­ar­fundi með Davíð, sem lést í gær. Sjálfur hóf Davíð póli­tískan feril sinn í borg­ar­málum og var borg­ar­stjóri í um ára­tug. Meðal emb­ætt­is­verka var að hefja upp­bygg­ingu á ráð­hús­inu við tjörn­ina, en sjálfur tók hann sæti á Alþingi áður en bygg­ingu lauk.

„Ég var örlítið óviss um hvernig hádeg­is­verð­ur­inn yrði því síð­ustu sam­skipti okkar voru eftir kapp­ræður dag­inn fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og þar var hann frekar ósáttur við rimmu sem við áttum í þætt­inum. „Davíð gleymir engu,“ hugs­aði ég,“ skrifar Einar sem starf­aði sem frétta­maður á RÚV áður en hann sneri sér að stjórn­málum.

„Ég ákvað þó að bjóða honum í ráð­húsið því mér þótti áhuga­vert að ræða við hann um borg­ar­málin. Hann þáði boðið undir eins enda hafði honum aldrei áður verið boðið á skrif­stofu borg­ar­stjóra í ráð­hús­inu við Tjörnina sem hann þó hafði for­göngu um að yrði byggt. Hann sagð­ist frekar vilja fisk en kjöt því hann væri að passa upp á heils­una. Ég fann að honum þótti vænt um að vera boðið.“

Einar segir fund­inn hafa verið skemmti­legan og að Davíð hefði á margan hátt mótað stjórn­mál sinnar kyn­slóðar. Davíð virð­ist hafa leikið á als oddi á fund­inum og við­ur­kenndi þá óvænt prakk­ara­strik sem hann greip stundum til á borg­ar­stjóra­ferl­inum. Þannig lýsir Einar sam­tal­inu:

„Davíð fór á kostum í hádeg­is­verð­inum, sagði frá hinum og þessum upp­á­komum í borg­ar­stjóra­tíð sinni, meðal ann­ars því þegar hann fékk fjar­stýr­ingu að gos­brunn­inum í Tjörn­inni og not­aði hana til að kveikja á honum og bregða fólki sem gekk fram hjá.“

Að end­ingu vottar Einar fjöl­skyldu og vinum samúð sína en Davíð lést í gær 78 ára gam­all.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár