Miðflokkurinn í aðildarferli hjá Evrópuflokki

Flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sæk­ist eftir aðild að ECR, flokki íhalds­manna og umbóta­sinna á Evr­ópu­þing­inu, sem Repúblikana­flokkur Donald Trump og Likud-flokkur Benja­mins Net­anyahu eiga auka­að­ild að.

Miðflokkurinn í aðildarferli hjá Evrópuflokki
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Formaður Mið­flokks­ins flutti loka­ávarp Nostos ráð­stefn­unnar í Helsinki 2023 en í bak­grunni er mynd af Ronald Reagan, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta.

Mið­flokk­ur­inn er í aðild­ar­ferli hjá ECR, Evr­ópu­flokki íhalds­manna og umbóta­sinna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar.

ECR er flokkur íhalds­samra stjórn­mála­flokka á Evr­ópu­þing­inu sem vilja breyta Evr­ópu­sam­band­inu til að draga úr umsvifum þess. Á meðal aðild­ar­flokka eru Lög og regla í Póllandi, Bræðra­lag Ítalíu, sem er flokkur Giorgiu Meloni for­sæt­is­ráð­herra, og Sví­þjóð­ar­demókratar. Á heims­vísu eru Repúblikana­flokkur Donalds Trump í Banda­ríkj­unum og Likud, flokkur Benja­mins Net­anyahu í Ísrael í flokka­sam­starfi með ECR.

Hvorki for­ysta Mið­flokks­ins né ECR-flokk­ur­inn sjálfur hafa svarað spurn­ingum Heim­ild­ar­innar um hver staða flokks­ins sé innan ECR eins og stendur.

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    En og aftur er merkilegt hvað litlar mannvits brekkur eru viljugar til að viðhalda misvæginu í heiminum og það stórar hluti þeirra á opinberum launum eða styrjum.
    3
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mjög áhugavert og fróðlegt innlegg í umræðunni
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár