Engin siðmenning án íhaldsstefnu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, ávarp­aði ráð­stefnu flokks Giorgiu Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu.

Engin siðmenning án íhaldsstefnu
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Franski Evr­ópu­þing­mað­ur­inn Marion Maréchal deildi svið­inu með for­manni Mið­flokks­ins en hún var of hægrisinnuð fyrir flokk­inn sem afi hennar, Jean-Marie Le Pen, stofn­aði.

Það væri engin sið­menn­ing eða fram­þróun án íhalds­stefnu í heim­inum, að mati Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins.

Sig­mundur Davíð var gestur á ráð­stefn­unni Atreju í Róm um helg­ina en hún er haldin af flokki Giorgiu Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, sem heitir Fratelli d'Italia, eða Bræðra­lag Ítalíu.

Fundinn sótti einnig hópur fólks úr röðum Ungra Mið­flokks­manna en á meðal fund­ar­gesta var einnig Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus.

Var Sig­mundur Davíð þátt­tak­andi í pall­borðsum­ræðum á föstu­dags­kvöld um áskor­anir íhalds­manna. Með honum voru ýmsir leið­togar ECR flokka í Evrópu frá Póllandi, Rúmeníu, Danmörku og Frakk­landi. ECR hóp­ur­inn er sam­band íhalds- og þjóð­ern­is­flokka, þar á meðal Sví­þjóð­ar­demókrata í Svíþjóð, Laga og rétt­lætis í Póllandi og flokks Meloni eins og áður segir. Á heims­vísu eru Repúblikana­flokkur Donalds Trump í Banda­ríkj­unum og Likud, flokkur Benja­mins Net­anyahu í Ísrael í flokka­sam­starfi með ECR.

Giorgia MeloniFlokkur for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu stóð …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Eyjólfsson skrifaði
    Sigmundur Fonseca er á heimaslóðum þarna með fasistum andskotans. Hvað var í bjórnum á Klausurbar ?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár