Uppfærð kostnaðaráætlun Kársnesskóla milljarði hærri en sú gamla

Meiri­hluti Kópa­vogs birti raun­töl­ur um kostn­að vegna fram­kvæmda við Kárs­nesskóla eft­ir um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar. Í þeirri til­kynn­ingu var millj­arði bætt við fimm ára gamla kostn­að­ar­áætl­un.

Uppfærð kostnaðaráætlun Kársnesskóla milljarði hærri en sú gamla
Kársnesskóli Uppbygging Kársnesskóla er á lokametrunum. Mynd: Golli

Meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs breytti kostnaðaráætlun vegna Kársnesskóla afturvirkt í kynningu fyrir bæjarráði þvert á tölur sem gefnar voru á sínum tíma. Meirihluti bæjarráðs lét líta út fyrir að upphafleg kostnaðaráætlun hefði verið milljarði hærri en fram kom í fyrri tilkynningum bæjarins, þar sem sagði að kostnaðaráætlun vegna uppbyggingar skólans væri áætluð 3,65 milljarðar króna. Sú áætlun er nú sögð 4,7 milljarðar sé áfallinn raunkostnaður reiknaður með ásamt fleiri liðum.

Munurinn á þessu er að í öðru reikningsdæminu fer bærinn tvo milljarða yfir áætlun en í hinu er yfirkeyrslan um fjórir milljarðar.

„Það er grafalvarlegt að bæjarfulltrúar hafi ekki fengið upplýsingar frá því í júní á síðasta ári,“ segir Bergljót Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, en hún og bæjarfulltrúi Viðreisnar gagnrýna meirihlutann fyrir slaka upplýsingagjöf tengdri uppbyggingu Kársnesskóla. Bæjarfulltrúar hafa ítrekað þurft að þrýsta á bæjarstjórn að uppfæra kostnaðarupplýsingar í opnu bókhaldi bæjarfélagsins. Við því var orðið á bæjarráðsfundi í lok …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
3
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár