„Við getum ekki borðað peninga“

„Tungu­málið er sjálfs­mynd okkar,“ segir Miite Geisler, frum­kvöð­ull og þátt­tak­andi í menn­ingar- og við­skipta­lífi Græn­lands. Sem barn flakk­aði hún um með veiði­mann­inum föður sínum og mót­að­ist af nátt­úr­unni. „Við færðum okkur til eftir veðri, veiðum og aðstæðum,“ segir hún. Og það var ekki ferða­lag heldur lífs­bar­átta. Þessi sjálf­stæða kona er alin upp við ást, saga hennar er vitn­is­burður um hvernig ást eflir sjálf­stæði.

„Við getum ekki borðað peninga“
Miite Geisler er lif­andi vitn­is­burður þess að ást í æsku tendrar sjálf­stæði á full­orð­ins­árum. Mynd: Golli

Aðeins fjórtán ára flutti Miite að heiman. Ekki vegna þess að hún neydd­ist til þess, heldur vegna þess sem hún kallar með­fædda sjálf­stæð­is­þörf. „Ég hafði alltaf trú á því að ég gæti séð um mig sjálf,“ segir hún.

Hún safn­aði pen­ingum, sagði fjöl­skyld­unni frá áformum sínum og flutti til Ilulissat, þar sem hún bjó hjá systur sinni í tæpan ára­tug áður en hún eign­að­ist sitt eigið heim­ili. Þar hófst veg­ferð sem leiddi hana í gegnum fisk­verk­smiðjur, versl­anir, stjórn­un­ar­störf, nám í Danmörku og að lokum til Nuuk, þar sem hún hefur búið síðan um 1990.

Saga hennar er sam­ofin sögu Græn­lands á umbreyt­ing­ar­tímum, frá veiði­menn­ingu til mark­aðs­hag­kerfis, frá nýlendu­hugsun til sjálf­stæð­is­bar­áttu, frá hefðum sem hurfu en voru end­ur­vaktar.

Flakkaði um með föður sínum

Áður en hún varð frum­kvöð­ull og þátt­tak­andi í menn­ingar- og við­skipta­lífi Græn­lands hafði hún fengið tæki­færi til að kynn­ast land­inu á annan hátt en …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár