Rússar segja stefna í hættulega stöðu vegna kjarnorkuvopna

Eft­ir nokkra daga verð­ur „heim­ur­inn í hættu­legri stöðu en nokkru sinni fyrr“, seg­ir tals­mað­ur Pútíns.

Rússar segja stefna í hættulega stöðu vegna kjarnorkuvopna
Dmitry Peskov Talsmaður stjórnvalda í Kreml varar við því að Nýi START-.samningurinn sem hemja á kjarnorkuvopnaeign muni renna út. Mynd: NATALIA KOLESNIKOVA / AFP

Rússnesk stjórnvöld vöruðu við því í dag að „hættulegar“ aðstæður væru framundan í heiminum, þar sem síðasti kjarnorkusamningur Bandaríkjanna og Rússlands rennur út í þessari viku.

„Eftir örfáa daga verður heimurinn í hættulegri stöðu en nokkru sinni fyrr,“ sagði talsmaðurinn Dmitry Peskov, nokkrum dögum áður en Nýi START-samningurinn rennur út. Fyrsti START (Strategic Arms Reduction Treaty) var undirritaður 1991 af Bandaríkjunum og Sovétríkjunum, skömmu áður en þau síðarnefndu leystust upp. Samningurinn setti þak á eign kjarnorkuodda við 6.000 og langdrægar eldflaugar og sprengjuþotur við 1.600.

Stjórn Vladimirs Pútín forseta, sem hefur boðist til að framlengja nokkur ákvæði samningsins, bætti við að tvö stærstu kjarnorkuveldi heims „verða eftir án grundvallarskjals sem myndi takmarka og hafa eftirlit með þessum vopnabúrum.“

Einn herskáasti embættismaður Rússlands, fyrrverandi forsetinn Dmitry Medvedev, varaði í gær sömuleiðis við stöðunni. Medvedev skrifaði undir Nýja START samninginn sem forseti árið 2010. Hann sagði að þetta myndi „flýta dómsdagsklukkunni“.

„Ég vil ekki halda því fram að þetta muni þegar í stað leiða af sér hörmungar og kjarnorkustríð, en allir ættu að óttast þetta,“ sagði Medvedev í viðtali við rússneskan stríðsbloggara.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið til kynna að hann muni láta samninginn renna út. „Ef hann rennur út rennur hann út,“ sagði hann í samtali við New York Times.  „Við gerum bara betri samning“. 

Bandaríkin hafa viljað að Kína, sem hefur stóreflt kjarnorkuvopnabúr sitt, taki þátt í samningnum, en stjórnvöld þar hafa ekki lýst á huga á því, enda stefna þau að því að jafna Rússa og Bandaríkjamenn.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Viðskipti með dulritunargjaldmiðla hafa alltaf verið áhætta, en með stefnu Nelson Frye hefur það verið hreint út sagt opinberun. Upphafleg fjárfesting mín hefur vaxið verulega í $433.000 og ég hef þegar gert mína fyrstu arðbæru úttekt. Ég mæli eindregið með að hafa samband við hann á Telegrams (NildaSGNL) ef þú ert að leita að árangri í dulritunarviðskiptum.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Indverjar eru farnir framúr Kína hvað mannfjöldann varðar þá er rússlandnúmer þrjú næst koma Bandaríkin númer fjögur svo er öll Evrópa samanlagt númer sexsvoþar áundan eru þá öll hin asíuríkin ef þau tækjusignúsaman með það aðmyndameðser sameiginlegthernaðarbandalagsem eitthvaðviterí en hvað með Afríku?hinríkinmættu lika skoðaþessamöguleika
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Enginn ætti að fara í stríð. Fara ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu ef einhverju stórmenninu dytti það í hug. Þó gæti sálfræðiþjónusta verið betri.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár