Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn

Óút­reikn­an­leg fram­koma Donalds Trump gagn­vart Græn­landi vekur ekki aðeins spurn­ingar um fram­tíð sjálf­stjórnar eyj­unnar heldur hefur hún líka grafið undan þeirri örygg­is­skipan sem norð­ur­slóðir hafa byggt á í ára­tugi. Þrátt fyrir að líkur á beinni inn­rás eða inn­limun séu enn litlar, segir sér­fræð­ingur við Háskóla Græn­lands að sú stað­reynd að þær séu ekki „núll” breyti öllu. „Það eitt að þurfa að taka slíka sviðs­mynd alvar­lega er alvar­legt í sjálfu sér,“ segir dr. Rasmus Nielsen. „Við erum vön því að stór­veldi virði ákveðin grunn­við­mið. Trump gerir það ekki.“

Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn

Dr. Rasmus Leander Nielsen er for­stöðu­maður Mið­stöðvar um utan­ríkis- og örygg­is­mál í háskól­anum í Nuuk og pró­fessor við félags­vís­inda- og hag­fræði­deild norð­ur­slóða. Þar sem hann situr á skrif­stofu sinni bregst hann við með hlátra­sköllum þegar hann er spurður að því hvort Grænland sé öruggt: „Nei.“

Þegar hlát­ur­inn fjarar út segir hann: „Okkur líður eins og við getum verið aðeins örugg­ari núna en und­an­farna daga, en um leið vitum við að þótt ástandið róist um stund getur for­seti Banda­ríkj­anna síðan sagt eitt­hvað allt annað.“

Á blaða­manna­fundi með for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, Jens-Frederik Nielsen, var hann inntur svara við því hvort hann treysti hund­rað pró­sent orðum Trumps þess efnis að hann myndi ekki taka Grænland með her­valdi, líkt og hann lýsti yfir á Davos. Fram að því hafði Trump ekki úti­lokað þann mögu­leika. For­sæt­is­ráð­herr­ann kvaðst verða að trúa því – en hvað segir …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár