Varnarsamningur við Bandaríkin stendur „óhaggaður“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra vill „dýpra sam­tal og sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið“.

Varnarsamningur við Bandaríkin stendur „óhaggaður“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Utan­rík­is­ráð­herra segir að nú þurfi að sýna var­kárni. Mynd: Víkingur

Eftir árás og hand­töku Banda­ríkj­anna á for­seta Venes­ú­ela og end­ur­tekn­ingar yfir­lýs­ingar Banda­ríkja­forsta í kjöl­farið um þörf­ina á inn­limun Græn­lands í Banda­ríkin, segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra þörf á að „sýna var­kárni, vera raunsæ og hugsa skipu­lega um það hvernig við getum best tryggt hags­muni og öryggi Íslands til lang­frama.“

Ísland er með tví­hliða varn­ar­samn­ing við Banda­ríkin og segir Þor­gerður Katrín í grein á Vísi.is að hann standi „óhagg­aður“, sem og aðildin að NATO, þrátt fyrir að Band­ríkin hóti leynt og ljóst að yfir­taka næsta nágranna­ríki Íslands.

Donald Trump sagði í við­tali í gær að hann vildi ræða Græn­lands­málið eftir 20 daga. „Tölum um Venes­ú­ela, Rússland, Úkraínu. Við höfum áhyggjur af Græn­landi eftir tvo mán­uði. Tölum um Grænland eftir 20 daga,“ sagði hann.

Þor­gerður Katrín segir í grein sinni að „alþjóða­kerfi sem við höfum búið við frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar [leiki] á reiði­skjálfi,“ en þó standi samn­ingar Íslend­inga við aðil­ann sem ógnar full­veldi Græn­lands „óhagg­aðir“.

„Grunn­stoðir íslenskra öryggis- og varn­ar­mála – aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og tví­hliða varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin – standa óhagg­aðar og skipta sköpum fyrir okkur. Hags­munum smá­ríkis er best borgið í sam­starfi og eðli­legt er að við treystum jafn­framt böndin við nágranna- og vina­þjóðir okkar,“ skrifar Þor­gerður. 

Hún bendir á að rík­is­stjórnin hafi „þegar stigið skref í þá átt“, meðal ann­ars með auknu sam­starfi við Finna og Þjóð­verja. „Ég tel ein­boðið að áfram verði unnið að nán­ara sam­starfi við þær þjóðir í okkar heims­hluta sem virða og verja þau gildi sem vest­ræn lýð­ræð­is­sam­fé­lög hvíla á. Dýpra sam­tal og sam­vinna við Evr­ópu­sam­bandið er þar lyk­il­breyta,“ segir Þor­gerður.

Rík­is­stjórnin frestaði nýverið und­ir­ritun sam­starfs­yf­ir­lýs­ingar um öryggis- og varn­ar­mál við Evr­ópu­sam­bandið, vegna þess að Ísland var ekki und­an­þegið vernd­ar­að­gerðum ESB vegna fram­leiðslu kís­il­járns.

Eftir að Banda­ríkin sendu her­lið til Venes­ú­ela og hand­tóku for­seta lands­ins um helg­ina, undir því yfir­skini að hann hefðu brotið af sér með þátt­töku í fíkni­efna­smygli, en settu síðan aðgerð­ina í sam­hengi við hlut Banda­ríkj­anna í olíu­fram­leiðslu Venes­ú­ela, fagn­aði Þor­gerður Katrín hand­tök­unni. „Mér finnst gott að hann sé far­inn,“ sagði hún, en hvatti til þess að alþjóða­lög væru virt, sem hafi ekki verið gert í aðgerð­inni. Þó vildi hún ekki for­dæma aðgerð­ina. Hún sagði það í sam­ræmi við við­brögð Evr­ópu­ríkja.

„Við erum öll á svip­uðum nótum, við erum auð­vitað að nálg­ast þetta af var­færni akkúrat á þess­ari stundu en und­ir­strikum að við höfum ekki verið að við­ur­kenna Maduro og hans stjórn.“

Stjórn Maduros situr hins vegar enn, án hans.

Í dag hvetur Þor­gerður Katrín til still­ingar and­spænis brotum Banda­ríkj­anna á alþjóða­lögum og yfir­lýs­ingum Banda­ríkja­stjórnar um að fleiri slík kunni að vera í aðsigi. „Sund­ur­lyndi, yfir­lýs­inga­gleði og dauða­hald í horf­inn heim er ekki það sem við þörfn­umst nú um stundir,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár