Einn látinn skammt frá Þrastarlundi

Alvar­legt umferð­ar­slys milli Selfoss og Þrast­ar­lunds.

Einn látinn skammt frá Þrastarlundi

Einn er lát­inn eftir alvar­legt umferð­ar­slys á Bisk­uptstungna­braut, sunnan við Þrast­ar­lund, upp úr klukkan hálf tvö í dag. Þetta er fyrsta banaslysið í umferð­inni í ár.

Um var að ræða árekstur tveggja bif­reiða og þrír ein­stak­lingar voru í bif­reið­unum. Tveir voru fluttir til aðhlynn­ingar á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands en öku­maður ann­arrar bif­reið­ar­innar var úrskurð­aður lát­inn á vett­vangi.

Ásamt lög­reglu voru sjúkra­bif­reiðar Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands, Bruna­varnir Árnes­sýslu og þyrla Land­helg­is­gæslu boðuð á vett­vang en þyrla aft­ur­kölluð skömmu síðar. Jafn­framt var Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa boðuð. 

Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á Suð­ur­landi fer með rann­sókn slyss­ins og ekki verða gefnar frek­ari upp­lýs­ingar að sinni.

Fyrsta banaslysið í umferð­inni í fyrra varð 21. febr­úar, en nú á það sér stað á þriðja degi árs­ins. Í fyrra lét­ust tíu í umferð­inni.

Uppfært: Maðurinn sem lést í slys­inu er mynd­lista­mað­ur­inn Goddur, Guð­mundur Oddur Magn­ús­son. Hann var stjö­tugur að aldri og var þekktur sem helsti list­gagn­rýn­andi lands­ins.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár