Banaslys til rannsóknar við Sláturfélag Suðurlands

Kona á fer­tugs­aldri lést í slysi. Litlar upp­lýs­ingar fást um atvikið.

Banaslys til rannsóknar við Sláturfélag Suðurlands
Vett­vangur slyss­ins Lög­reglan á Suð­ur­landi greindi frá því í dag að kona hefði lát­ist fyrir þremur dögum eftir að hafa orðið fyrir ótil­greindri bif­reið á bíla­stæði Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands. Mynd: map.is/Heimildin

Hvorki lög­reglan á Suð­ur­landi né stjórn­endur Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands vilja veita upp­lýs­ingar um banaslys sem varð á bíla­stæði félags­ins á Hvols­velli 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Lög­reglan til­kynnti um málið á Facebook í dag. 

„Að kvöldi 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn barst Lög­regl­unni á Suð­ur­landi til­kynn­ing um alvar­legt slys á Hvols­velli, þar sem kona á fer­tugs­aldri varð fyrir bif­reið á vinnu­svæði,“ sagði í til­kynn­ing­unni. 

„Konan var flutt á Land­spít­ala háskóla­sjúkra­hús og var hún þar úrskurðuð látin. Tildrög slyss­ins eru til rann­sóknar hjá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á Suð­ur­landi. Ekki er að vænta frek­ari upp­lýs­inga frá lög­reglu um atvikið.“

Stjórn­endur Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands í höf­uð­stöðvum og á skrif­stofu félags­ins á Hvols­velli hafa neitað að gefa frek­ari upp­lýs­ingar um málið, þar á meðal hvort um hafi verið að ræða starfs­mann félags­ins, íbúa á svæð­inu eða annað sem við­kemur atvik­inu, annað en að kona á fer­tugs­aldri hafi lát­ist.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár