STEF um ólögmæta notkun á tónlist fyrir Miðflokksmyndband: „Auglýsing er auglýsing“

Lögmaður og fram­væmda­stjóri STEF segir aug­lýs­inga­mynd­band fyrir Mið­flokk­inn ekki fría skap­ara þess allri ábyrgð þegar kemur að ólög­mætri notkun á tón­list Mugison. Hún telur þörf á fræðslu um málið.

STEF um ólögmæta notkun á tónlist fyrir Miðflokksmyndband: „Auglýsing er auglýsing“
Hér má sjá skjá­skot af reikn­ingnum sem virð­ist beina allri sinni orku í að kynna Mið­flokk­inn auk þess að dreifa hat­urs­fullum mynd­böndum um inn­flytj­endur.

„Það er skýrt að það er ekki heim­ilt að nota tón­list­ar­banka sam­fé­lags­miðl­anna að kostn­að­ar­lausu nema í einka­skyni,“ segir Guðrún Björk Bjarna­dóttir, lög­fræð­ingur og fram­kvæmda­stjóri STEF. Myndband sem sýndi mynd­skeið frá fyrri hluta síð­ustu aldar var birt á sam­fé­lags­miðl­inum TikTok og end­aði á því að hvetja fólk til þess að kjósa Mið­flokk­inn. Undir var tón­list Mugison, hið sívin­sæla „Stingum af“. Gagn­rýndi tón­list­ar­mað­ur­inn svo skap­ara mynd­bands­ins og sagði það sið­leysi að nota lag hans með þessum hætti.

MÍGA

Mynd­bandið var svo líkt kosn­inga­mynd­bandi á vegum flokks­ins að sá mis­skiln­ingur kom upp að það væri á vegum flokks­ins sjálfs. Yfir­skrift reikn­ings­ins er Make Iceland Great Again, sem er aug­ljós vísun í slag­orð Donald Trump, Make America Great Again. Eigandi reikn­ings­ins hefur ekki gefið sig fram og því óljóst hver stendur á bak við hann. Á meðan fær Mið­flokk­ur­inn að njóta vafans.

Spurn­ingin er því þessi; þarf tón­list­ar­fólk þá að sætta …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár