Vildu vita hvort þau væru að ganga of langt í rafrænu eftirliti

Árna­stofnun sendi erindi á Per­sónu­vernd til þess að útkljá hvort stofn­unin væri að ganga of langt í raf­rænu eft­ir­liti með forn­hand­ritun Íslend­inga.

Vildu vita hvort þau væru að ganga of langt í rafrænu eftirliti
Edda, hús íslensk­unnar. Mynd: Háskóli Íslands

Úrskurð­ar­nefnd Per­sónu­verndar komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok des­em­ber að raf­rænt eft­ir­lit með vinnu­stofu starfs­manna væri heimil þrátt fyrir mót­mæli tveggja starfs­manna. Málið setti raf­rænt eft­ir­lit Árna­stofn­unar, í nýlegu húsi íslensk­unnar, Eddu, í nokkuð upp­nám. Slökkt var á mynda­vél­unum á meðan á ágrein­ingnum stóð. Tveir starfs­menn á örygg­is­svæð­inu settu sig alfarið upp á móti því að vinnu­stofur þeirra væru vaktaðar og töldu að það væru ekki mál­efna­legar ástæður fyrir slíku eft­ir­liti og að end­ingu vís­aði Árna­stofnun sjálf mál­inu til Per­sónu­verndar vegna óvissu um lög­mæti þess.

Í úrskurð­inum kemur fram að um sé að ræða hús íslenskra fræða, Eddu, þar sem forn­hand­rit Íslend­inga eru varð­veitt. Hand­ritin eru á heimsminja­skrá Unesco og eft­ir­lit því tals­vert og var útfært af verk­fræði­stof­unni Eflu.

Örygg­is­gæsla er í hús­inu allan sól­ar­hring­inn og felst eft­ir­lit þeirra meðal ann­ars í því að vakta loft­gæði ásamt því að fylgj­ast með öruggri varð­veislu hand­rita og ann­arra frum­gagna í …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár